Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 13
ir samninga geta kallað á mismunandi túlkun á lagaskilareglum,
t.d. er ekki sjálfgefið að sambærilegar reglur gildi um vátrygging
arsamning og um samning um sölu á lausafé.9
Um lagaskilareglur á sviði samningaréttar gilda lög nr. 43/2000
um lagaskil á sviði samningaréttar. Lögin byggja að meginstefnu til
á Rómarsamningnum sem tók gildi 19. júní 1980. Verður fjallað um
lögin og Rómarsamninginn í köflum 3.2 og 3.4. Þá skal þess getið að
Rómarsamningurinn hefur nú verið felldur úr gildi með Rómar
reglugerðinni sem felur í sér talsverðar breytingar á lagaskilareglum
samningaréttar innan Evrópusambandsins.
Áður en lög nr. 43/2000 komu til sögunnar giltu um lagaskilarétt
innan samninga ólögfestar meginreglur þó að einstaka sérreglur
hafi verið að finna á víð og dreif í íslenskri löggjöf. Almennt má
segja að aðilum samnings hafi verið játað svigrúm til að semja um
það reglum hvaða lands skyldi beita um samninga milli þeirra, en
að því slepptu var miðað við reglu sem hefur að markmiði að meta
sterkustu tengsl samnings við tiltekin lög.10 Er það í samræmi við
núgildandi meginreglur sem fram koma í lögum nr. 43/2000, eins og
rakið verður í kafla 4 hér á eftir. Þrátt fyrir þetta meginsjónarmið um
samningsfrelsi var það ekki með öllu takmarkalaust. Þannig töldu
dómstólar sig geta ákveðið að beita öðrum lögum en aðilar höfðu
samið um sín á milli og enn fremur beittu dómstólar ófrávíkjanleg
um reglum íslensks réttar í hérlendum dómsmálum.11
3.2 Rómarsamningurinn frá 19. júní 1980
Samþykkt Rómarsamningsins var liður í tilraun Evrópusambands
ins til að setja samræmdar reglur á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar.
Rekja má samninginn til sjöunda áratugar síðustu aldar. Árið 1967
var af hálfu Beneluxlandanna lögð tillaga fyrir framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins um að samræma reglur alþjóðlegs einkamála
réttar innan sambandsins, einkum er varðar reglur innan samn
inga.12 Tillaga þessi leiddi til Brusselsamningsins frá 1968 um
dómsvald og fullnustu dóma í einkamálum. Með svokölluðum Lúg
anósamningi árið 1988 gerðu Evrópubandalagsríkin og EESríkin
með sér sambærilegan samning um dómsvald og fullnustu dóma í
einkamálum. Samningurinn var lögfestur hér á landi með lögum nr.
68/1995 um Lúganósamninginn um dómsvald og fullnustu dóma í
einkamálum. Nýr samningur var gerður í Lúganó 30. október 2007
9 Peter North og J.J. Fawcett: Chesire and North‘s Private International Law. Oxford 2004,
bls. 533534.
10 Sjá Eyvindur G. Gunnarsson: „Lagaskil á sviði samningaréttar“, bls. 141142.
11 Eyvindur G. Gunnarsson: „Lagaskil á sviði samningaréttar“, bls 142.
12 Peter North og J.J. Fawcett: Chesire and North‘s Private International Law, bls. 535.