Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Blaðsíða 60
b) Markaðsmisnotkun í formi viðskipta eða tilboða
Markaðsmisnotkun í formi viðskipta eða tilboða er miðlun rangra
eða misvísandi upplýsinga í verki.25 Röngum eða misvísandi upp
lýsingum er miðlað í gegnum viðskipti eða tilboð í skráða fjármála
gerninga eða fjármálagerninga tengda þeim, t.d. afleiðusamninga.26
Um er að ræða mun flóknara fyrirbæri en markaðsmisnotkun í
formi rangrar upplýsingagjafar, m.a. vegna þess að erfiðara getur
reynst að sýna fram á að um rangar eða misvísandi upplýsingar
hafi verið að ræða.27 Þessi undirflokkur tekur til flestra tilvika. Þess
vegna er nauðsynlegt að greina hann niður enn frekar. Flokkurinn
tekur annars vegar til sýndarviðskipta eða tilboða (e. fictive transac
tions) og hins vegar til raunverulegra viðskipta eða tilboða (e. real
transactions).
Ákvæðið um sýndarviðskipti eða tilboð er í 2. tl. 1. mgr. 117. gr.
vvl. Samkvæmt ákvæðinu telst það vera markaðsmisnotkun að:
eiga viðskipti eða gera tilboð sem byggð eru á tilbúningi eða þar sem notuð
eru einhver form blekkingar eða sýndarmennsku.
Í meginatriðum er í sýndarviðskiptum eða tilboðum einhverjum
hliðum viðskiptanna eða tilboðanna haldið leyndum fyrir markað
num. Til dæmis því að sami aðili standi að baki viðskiptunum á
kaup og söluhliðinni. Ef fjárfestir X selur hlutabréf sín í fyrirtæki A
til einkahlutafélagsins B án þess að láta þess getið að hann sé beggja
megin borðsins gæti það hugsanlega talist markaðsmisnotkun að
öðrum efnisskilyrðum ákvæðisins uppfylltum. Ástæðan er sú að
miðað við þær upplýsingar sem markaðurinn fær virðast viðskipti
með hlutabréf A vera milli óháðra aðila. Segja má að í þessu tilviki
sé um að ræða sýndareftirspurn. Ef markaðurinn er hins vegar upp
lýstur um allar staðreyndir að baki tilteknum viðskiptum myndu
þau ekki teljast markaðsmisnotkun undir venjulegum kringumstæð
um.28
25 Í bókinni Informationsmisbrug nefnir höfundurinn, Jesper Lau Hansen, umræddan
flokk kommunikation ved adfærd eða tjáskipti með háttsemi. Sjá umfjöllun á bls. 499504.
26 Með skráðum fjármálagerningi er átt við fjármálagerninga sem hafa verið teknir til
viðskipta eða óskað hefur verið eftir að teknir verði til viðskipta á skipulegum verðbréfa
markaði hér á landi, á Evrópska efnahagssvæðinu eða á sambærilegum erlendum mörk
uðum, sbr. 1. tl. 1. mgr. 115. gr. vvl. Sama á við um fjármálagerninga sem verslað er með á
markaðstorgi fjármálagerninga (MTF) hér á landi.
27 Sjá til hliðsjónar OddHarald B. Wasenden: Energimarkedsrett. Om informasjonsplikt og
markedsatferd i det finansielle kraftmarkedet. Osló 2007, bls. 411.
28 Sjá Paul Krüger Andersen og Nis Jul Clausen: Børsretten II. Kaupmannahöfn 2008, bls.
390. Sjá einnig til hliðsjónar Jesper Lau Hansen: Informationsmisbrug, bls. 515516.