Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Side 89
lúti að bótum fyrir „skerðingu á getu tjónþola til þess að njóta lífs
ins eins og heilbrigðir menn“,23 en skerðing í þá veru getur vissulega
leitt af andlegri vanheilsu.24
Að vísu er það svo að miskatafla örorkunefndar víkur ekki að
slíkri vanheilsu. Taflan er hins vegar ekki tæmandi, enda víkur hún
einfaldlega að miskastigi vegna tiltekinna tegunda líkamstjóns og í
inngangi hennar er sérstaklega tekið fram að áverka sem ekki sé
getið um í töflunni verði að meta með hliðsjón af svipuðum áverk
um í töflunni og hafa til hliðsjónar miskatöflur annarra landa sem
getið sé um í hliðsjónarritum. Þar er meðal annars vísað til miska
töflu „Arbejdsskadestyrelsen“ í Danmörku. Auk þess verður að
telja að stoð sé fyrir því í lögskýringargögnum að hafa þá töflu til
skýringar þegar tilgreiningum í íslensku töflunni sleppir.25 Þegar
horft er til dönsku töflunnar er ljóst að hún tilgreinir andlegt tjón í
framangreinda veru, sbr. kafla J í töflunni, sem ber heitið „Andlegt
tjón vegna ofbeldis eða áfalls“ (d. Psykiske skader efter vold eller chok).26
Rétt er að draga saman nokkur meginatriði úr umræddum kafla
enda verður samkvæmt framansögðu að líta til hans í tilviki slíks
tjóns, þar sem ákvæði um þetta skortir í íslensku töflunni:
Í upphafi kaflans er að því vikið að minni háttar sálrænt tjón, vegna minni
háttar ofbeldis, hótana eða áfalls geti ekki eitt og sér leitt til varanlegs miska
sem telst 5 stig27 eða meira.28 Kaflinn skiptist síðan í fjóra undirkafla, J.1 til
J.4.
23 Alþt. 19921993, Adeild, bls. 3627.
24 Í þessu sambandi má nefna að í matsgerðum er mjög algengt að litið sé til þess, við
matið á varanlegum miska, hvernig getu tjónþola til að sinna áhugamálum sínum (tóm
stundum) og eiga samneyti við annað fólk er háttað, en ljóst er að andleg vanheilsa kann að
skerða slíka getu talsvert.
25 Viðar Már Matthíasson: Skaðabótaréttur, bls. 655656. Viðar Már vísar að þessu leyti til
Alþt. 19921993, Adeild, bls. 36433644, þar sem birt eru dæmi úr þágildandi danskri
töflu.
26 Núgildandi tafla er frá 1. janúar 2012 og hana má nálgast á vefsíðu Arbejdsskadestyrel
sen, http://www.ask.dk.
27 Til samræmis við íslenska ákvæðið verður hér talað um stig þótt danska taflan noti
hugtakið prósentur, enda hefur sá munur ekki efnislega þýðingu. Raunar er framsetningin
í íslensku töflunni einnig í prósentum, þótt rétt sé með tilliti til skaðabótalaganna að tala
þar um stig, sbr. Viðar Már Matthíasson: Skaðabótaréttur, bls. 662.
28 Orðrétt segir: „Udsættelse for ubetydelig vold, trusler eller chok på grund af mindre
psykisk traume antages ikke som eneste årsag at kunne medføre varigt psykisk mén på 5
procent eller derover.“ Tekið skal fram í því sambandi að varanlegur miski undir 5 stigum
fæst ekki bættur í Danmörku, sbr. Bo von Eyben og Helle Isager: Lærebog i erstatningsret.
Kaupmannahöfn 2007, bls. 309.