Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Síða 93
og önnur framangreind ákvæði.38 Brotaþoli sem sannanlega verður
fyrir varanlegri starfsorkuskerðingu vegna andlegra afleiðinga
kynferðisbrots á þannig rétt á bótum fyrir varanlega örorku, rétt
eins og ef skerðingin stafaði af líkamlegum þáttum. Þannig má finna
dóma af öðrum sviðum þar sem tjónþoli hefur fengið bætur fyrir
varanlega örorku vegna andlegra afleiðinga, svo sem Hrd. 2002, bls.
296 (mál nr. 303/2001). Þar var skaðabótaskylda Ísafjarðarbæjar viður
kennd, vegna andlegs tjóns sem kona varð fyrir þegar æfing slökkvi
liðs í námunda við heimili hennar fór úr böndunum. Í dómi Hæsta
réttar sagði meðal annars:
Í málinu nýtur ítarlegra læknisfræðilegra gagna um andlega líðan stefndu
á næstu sjö árum eftir brunann á Ísafirði … Er þar einkum að nefna álits
gerð örorkunefndar 4. ágúst 1998, matsgerð tveggja dómkvaddra mats
manna 29. september 1999 og yfirmatsgerð þriggja dómkvaddra mats
manna 26. september 2000. Af þessum gögnum og framburði annars und
irmatsmannsins og eins yfirmatsmanna fyrir héraðsdómi verður ráðið með
öruggri vissu, að stefnda hafi orðið fyrir áfallastreituröskun við eldsvoð
ann og viðvarandi og hamlandi kvíðaröskun og hlotið af þunglyndi án
geðrofseinkenna. Af þessu hefur hún samkvæmt niðurstöðu yfirmats
manna hlotið 20% varanlegan miska og 40% varanlega örorku. Er því
sannað, að orsakatengsl séu milli atburðarins og heilsutjóns stefndu.
Eins má finna dæmi af sviði vinnuslysa og umferðarslysa þar
sem andlegar afleiðingar tjónsatburða hafa haft þýðingu fyrir mat á
varanlegri örorku.39 Í ljósi þess að bætur fyrir varanlega örorku taka
einnig til andlegs tjóns og fyrirliggjandi dæma af öðrum sviðum,
sætir í reynd furðu að ekki skuli oftar verið láta reyna á rétt til slíkra
bóta í tilviki kynferðisbrota, sér í lagi þar sem andlegar afleiðingar
slíkra brota eru stundum mjög alvarlegar. Í því sambandi skal árétt
38 Sjá hér m.a. Viðar Már Matthíasson: Skaðabótaréttur, bls. 678: „Líkamstjónið og afleið
ingar þess, líkamlegar og andlegar, skipta oft verulegu máli, þegar spáð er fyrir um það,
hver framvindan verður í lífi tjónþola, að teknu tilliti til tjónsatviks. Kemur það bæði til
skoðunar, að því er varðar þau áhrif, sem strax koma fram og þau áhrif, sem telja verður,
að fram komi síðar, en þau verður að taka strax inn í örorkumatið. Leggja verður áherzlu
á, að það eru ekki bara hinar líkamlegu afleiðingar líkamstjóns, sem hér skipta máli, heldur
einnig hinar andlegu.“ Hér má einnig benda aftur á fyrirliggjandi lagafrumvarp um breyt
ingar á lögum nr. 69/1995, þar sem segir m.a.: „Ekkert virðist í raun vera því til fyrirstöðu
að þolandi kynferðisbrots geti krafist bóta vegna varanlegra afleiðinga brotsins, enda telst
andlegt tjón til varanlegs miska sem og varanlegrar örorku.“ Alþt. 20112012, Adeild, þskj.
1116 – 686. mál, bls. 3. Til hliðsjónar um tilvist andlegs tjóns sem líkamstjóns má loks benda
á dóm Hæstaréttar frá 20. desember 2011 í máli nr. 229/2011, þar sem litið var til andlegra af
leiðinga líkamsárásar við heimfærslu brots til 2. mgr. 218. gr. hegningarlaga, sem varðar
„stórfellt líkams eða heilsutjón“.
39 Hér má til dæmis benda á dóm Hæstaréttar frá 14. febrúar 2008 í máli nr. 307/2007, auk
þess sem sama á við um suma þá aðra dóma sem nefndir voru í umfjölluninni um var
anlegan miska.