Milli mála - 2022, Blaðsíða 12
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 11
færni í málinu og tilheyra annarri eða þriðju kynslóð innflytjenda
(Belpoliti og Bermejo 2019, 8−24).3
Tileinkun spænsku sem erlends máls hefur vaxið fiskur um hrygg
á Íslandi á undanförnum áratugum og fyrir bragðið má gera ráð fyrir
að einhver hluti þjóðarinnar hafi vald á spænsku, allt frá því að hafa
grunnþekkingu í málinu upp í að hafa tiltölulega góð tök á því. Þá
hefur innflytjendum frá Spáni og öðrum spænskumælandi löndum
farið fjölgandi, einkum í kjölfar efnahagshrunsins og kreppunnar
árið 2008. Einnig má í þessu samhengi nefna aukinn fjölda innflytj-
enda frá löndum eins og t.d. Kólumbíu og Venesúela sem hafa leitað
hælis á Íslandi vegna stjórnmálaástandsins í heimalandinu.4 Með
aukinn straum innflytjenda frá spænskumælandi löndum í huga og
vinsældir spænsku sem erlends máls í framhaldsskólum er eðlilegt að
velta því fyrir sér hversu margir geti tjáð sig á spænsku á Íslandi. Að
sama skapi má spyrja hver staða spænsku sé í hópi þeirra tungumála
sem eru töluð á Íslandi og hvort hlutfall spænskumælandi fólks sé
álíka og gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum eða í öðrum
löndum Evrópu.
Hér í greininni er fjallað um samevrópskt rannsóknarverkefni sem
hverfist um kortlagningu spænsku í Evrópu, þar á meðal á Íslandi.
Markmið verkefnisins er að grafast fyrir um stöðu tungunnar í álf-
unni og freista þess að draga upp heildstæða mynd af notkun hennar
utan Spánar. Forgöngumenn rannsóknarverkefnisins eru fræðimenn-
irnir Francisco Moreno Fernández, Óscar Loureda Lamas og Johannes
Kabatek og tilheyra þeir Rannsóknarstofu í íberamerískum fræðum
(sp. Centro de Estudios Iberomericanos) við Háskólann í Heidelberg,
Þýskalandi, og Háskólanum í Zürich í Sviss. Menningarmálastofnun
Spánar, Cervantes-stofnunin, kemur að útgáfu og dreifingu niður-
staðna rannsóknarhópanna í hinum ýmsu löndum. Verkefnið sprettur
af þeirri tilgátu að spænskt mál hafi haslað sér völl vegna þátta eins
og menningarlegs mikilvægis þess á heimsvísu og vinsælda spænsku
3 Til frekari upplýsinga má benda á samantekt GMDAC (Global Migration Data Analysis Centre)
frá 2021 um innflytjendur í Bandaríkjunum. Sjá: https://www.migrationdataportal.org/es/regio-
nal-data-overview/datos-migratorios-en-america-del-norte
4 Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun komu rúmlega 60 manns, aðallega konur og
börn, frá Kólumbíu á árunum 2005–2007 og mörg hundruð manns hafa komið frá Venesúela frá
árinu 2020. Til frekari upplýsinga sjá: https://utl.is/index.php/um-utlendingastofnun/toelfraedhi/
toelfraedhi-verndarsvidhs. Sjá enn fremur upplýsingar á heimasíðu stjórnarráðsins: https://www.
stjornarradid.is/verkefni/utlendingar/flottafolk/fjoldi-flottamanna/
ERLA ERLENDSDÓTTIR, HÓLMFRÍÐUR GARÐARSDÓTTIR OG NÚRIA JIMÉNEZ