Milli mála - 2022, Page 23
MILLI MÁLA
22 Milli mála 14/2/2022
verður hér gerð grein fyrir helstu þáttum hennar og leitast við að
útskýra helstu viðfangsefni sem íslenski rannsóknarhópurinn þarf að
kljást við.
Fyrsti hópurinn sem sjónir beinast að eru einstaklingar sem hafa
spænsku alfarið á valdi sínu. Þeir deilast í eftirfarandi hópa eftir upp-
runa og bakgrunni:
MMH1 – Spænskumælandi innflytjendur sem ekki hafa ís-
lenskt ríkisfang.
MMH2 – Erfðamálsmálhafar af annarri innflytjendakynslóð
sem eru í tengslum við umhverfi sem hefur stuðlað að til-
einkun og viðhaldi spænsku.
MMH3 – Spænskumælandi innflytjendur með íslenskt
ríkisfang.
MMH4 – Spænskunemendur sem hafa náð færnistigi C1 sam-
kvæmt Evrópurammanum (mjög færir málhafar í öðru máli).
Fyrsti hópurinn (MMH1) eru einstaklingar með móðurmálsfærni.
Hér undir falla allir spænskumælandi innflytjendur sem eru skráðir
í landinu en hafa ekki íslenskt ríkisfang. Einstaklingar frá spænsku-
mælandi landi eru ekki endilega móðurmálshafar en hafa spænsku
fullkomlega á valdi sínu þar sem þeir hafa tileinkað sér málið frá
blautu barnsbeini og innan veggja heimilisins, í samskiptum við aðra
meðlimi málsamfélagsins, eða í skóla (Swann og fleiri 2004).
Hinn 1. janúar 2020 bjuggu 1.676 spænskumælandi innflytj-
endur á Íslandi sem ekki voru með íslenskt ríkisfang (hagstofa.is), um
0,04% þjóðarinnar, en íbúatala landsins var þá 364.134 (hagstofa.is).
Flestir þessara innflytjenda voru frá Spáni, eða 1.136, þ.e. um 0,03%
þjóðarinnar. Eins og fram kemur hjá Loureda Lamas og félögum
(2021, 69) er ástæðan fyrir flutningum Spánverja innan Evrópu ekki
einungis landfræðileg nálægð, sem dregur úr kostnaði við búferla-
flutninga, heldur einnig ýmsar ytri aðstæður sem auðvelda flutninga
ásamt ýmsum borgaralegum réttindum sem draga úr áhættunni við
það að flytja sig um set, t.d. ákvæði um frjálst flæði fólks/vinnuafls
milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins þar sem innflytjendum
eru tryggð ákveðin réttindi. Þess má geta að Hagstofa Íslands notar
í gögnum sínum tvær breytur: önnur er ríkisfangið og hin er upp-
DRÖG AÐ KORTLAGNINGU SPÆNSKU Á ÍSLANDI