Milli mála - 2022, Page 37
MILLI MÁLA
36 Milli mála 14/2/2022
Útdráttur
Drög að kortlagningu spænsku á Íslandi
Í greininni er sagt frá samevrópsku rannsóknarverkefni sem hverfist
um kortlagningu spænsku í Evrópu. Markmið verkefnisins er að
grafast fyrir um stöðu spænskrar tungu í álfunni og freista þess að
draga upp heildstæða mynd af notkun hennar utan hins spænsku-
mælandi heims. Forgöngumenn rannsóknarverkefnisins eru fræði-
menn frá háskólum á Spáni, Þýskalandi og Sviss. Einnig tekur
Cervantes-stofnunin þátt í verkefninu. Að verkefninu koma um 30
sérfræðingar og fræðimenn frá ýmsum löndum í Evrópu. Hver verk-
efnishópur hefur á sinni könnu eitt eða fleiri lönd. Íslensku þátttak-
endurnir eru í hópi með fræðimönnum frá öðrum Norðurlöndum
en í hópnum eru sérfræðingar frá Árósum, Kaupmannahöfn, Osló,
Reykjavík, Stokkhólmi og Tampere. Niðurstöður rannsóknarverk-
efnisins í hinum ýmsu löndum verða gefnar út á bók í ritröðinni
Kortlagning spænsku í Evrópu. Fyrsta heftið í ritröðinni kom út árið
2020 og fjallar um kortlagningu spænsku í Þýskalandi. Á næstunni
er von á niðurstöðum rannsóknarhópa í Sviss og Portúgal.
Verkefnishóparnir fylgja sama verklagi og aðferð í öflun og
greiningu gagna sem gerir kleift að bera saman niðurstöðu á milli
Norðurlanda annars vegar og einstakra landa Evrópu hins vegar.
Í rannsóknarverkefninu er aðferðum Moreno Fernández og Otero
Roth fylgt en þeir hafa um langt árabil haft forystu um rannsóknir á
þessu sviði í spænskumælandi löndum heims, einkum Spáni. Í rann-
sókninni er byggt á lýðfræðilegum upplýsingum og fellur nálgunin
undir það sem kallast lýðfræðimálvísindi, nálgun sem beitir einnig
aðferðum félagsmálvísinda. Málhafar eru taldir og flokkaðir eftir
færnistigum. Þar ber fyrst að nefna móðurmálshafa, í annan stað mál-
hafa með takmarkaða málfærni og í þriðja lagi þá einstaklinga sem
hafa tileinkað sér spænsku sem annað mál og búa yfir mismunandi og
jafnvel takmarkaðri málfærni.
Lykilorð: lýðfræðimálvísindi, spænska í Evrópu, spænska á Ísland
DRÖG AÐ KORTLAGNINGU SPÆNSKU Á ÍSLANDI
10.33112/millimala.14.1.2