Milli mála - 2022, Page 78
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 77
Í þessari vísu er það grallarinn Káinn sem bregður nýju ljósi á
þekkta hugmynd. Hann hafði ekki orð á sér sem slagsmálahundur
á fullorðinsárum, þótt hann segði í vísunni „Lengi muna börnin“ að
„drekka og fljúgast á“ væri það helsta sem hann hefði lært á Íslandi
og „minnkun ekki þótti þá“ (Beck 1945, 91). Káinn var sagður hafa
haft tilhneigingu til þess að vera alla jafna heldur þumbaralegur
eða orðfár, vilja helst „mind his own business“ en verða aftur á móti
skrafhreifinn og hrókur alls fagnaðar með víni (Jón Hjaltason 2020,
150−151, 260). Hér er hann þó að yrkja í orðastað þeirra sem fóru
gagngert á samkomur og í miðbæinn hérlendis sem erlendis til þess
að slást þar til blóð flæddi um völlinn og enginn var uppistandandi.
Orðalagið „fram í opinn dauðann“ gefur til kynna að höfundur sam-
sami sig ekki við ljóðmælandann, enda er töluverð þversögn eða
ólíkindi í því sem „frískar geð“ svo kröftuglega að það leiði menn
„allt fram í opinn dauðann“. Reyndar má líka ráða af orðalaginu um
það sem hann lærði á Íslandi að ekki hafi „þá“ þótt minnkun af því,
þó að „nú“ séu viðhorfin breytt.
Vísa Káins „War-harðindi“ er kveðin í andsvari við „Vorharðindi“
Stephans G. Stephanssonar (Andvökur 1954, 374), en vísan er jafn-
framt með smellið samspil á milli íslensku og ensku. Stephan orti
sitt kvæði árið 1910 þegar honum fannst sjálfstæðisbarátta Íslendinga
ekki nógu hraðfara og afgerandi, og spurði hvort ekki færi að vora:
„Hvort réttist eigi söngvíst sumarljóðið / úr sultarkeng ins vetrar-
langa húms?“ Áeggjan Stephans um það hvort Íslendingar fari ekki
að kasta af sér þrælsfjötrum Danaveldis svarar Káinn í fyrri heim-
styrjöldinni og segir:
Ekkert „war“ þar er né var,
ei mun vora í skyndi.
En bræður vora „bursta“ þar,
bölvuð „war“-harðindi.
(1945, 130, mínar áherslur)
Í fyrri heimstyrjöldinni minnkaði þjóðarframleiðsla Íslendinga all-
verulega og vöruflutningar til landsins urðu svo torveldir að sífellt
svarf meira að. „Snemma árs 1917 sáu yfirvöld í Reykjavík sig knúin
til að skammta olíu, kol, sykur, kornmat og fleiri vörur. … Um
GUÐRÚN BJÖRK GUÐSTEINSDÓTTIR