Milli mála - 2022, Síða 91
MILLI MÁLA
90 Milli mála 14/2/2022
geta að Agnesi er lýst sem algjörum engli og saklausu fórnarlambi í
kvikmyndinni Agnesi eftir Egil Eðvarðsson frá 1995; hér kúgar hinn
grimmi og kvensami Natan Agnesi og „hún er algjörlega án eigin
vilja meðan örlögin hrekja hana miskunnarlaust út á ystu nöf“.17
Þessar nánast goðsagnakenndu staðalímyndir sem einkenna túlk-
anir á sögu Agnesar vöktu áhuga Hönnuh Kent. Þær endurspegla
að hennar mati hvernig konur sem skáru sig úr eða voru á einhvern
hátt öðruvísi voru áður fyrr litnar hornauga: „ef þú ert ekki engill, þá
hlýturðu að vera djöfull. Það er grimmileg tvískipting“, segir Kent.18
Að mati Kent er þörf fyrir bæði hlutlægari og tvíræðari mynd af
Agnesi þar sem „gráa svæðið“ í túlkun á persónu hennar og gjörðum
sé ráðandi.19 Með skáldsögunni Náðarstund leitast Kent við að vinna
gegn þessum staðalímyndum og lýsa Agnesi á margræðari hátt, ekki
endilega til að sanna sakleysi hennar heldur til að varpa ljósi á marg-
brotið, mannlegt eðli hennar.20 Ætlun hennar er að komast nær „til-
finningalegum sannleika“ atburðanna sem bundu enda á líf Agnesar
og afbyggja hefðbundnar staðalímyndir af henni.21
Í þessu samhengi er mikilvægt að taka fram að helstu heimildir
sem fjalla um sögu Agnesar eru skráðar af körlum, en í inngangi
sínum að The Female Figure in Contemporary Historical Fiction frá 2012
fjalla Katherine Cooper og Emma Short um hvernig reynslu og lífs-
hlaupi kvenna í sögunni hefur einatt verið gerð skil frá karllægu sjón-
arhorni í sagnfræðilegum og skáldlegum skrifum gegnum aldirnar.22
Og oft hefur einfaldlega verið skautað yfir eða sneitt hjá reynslu og
hlutverki kvenna í sögunni. Þar eru þær ekki þátttakendur og skortir
almennt vald. Síðustu tvo til þrjá áratugi hefur verið sívaxandi áhugi
meðal kvenrithöfunda á því að endurskapa og endurrita lífshlaup
sögulegra kvenna í skáldskap. Þetta er liður í því að rétta hlut kvenna
í sögunni, gefa þeim hlutverk og skapa þeim einhver áhrif. Sögulegar
skáldsögur sem einblína á reynslu kvenna eru því í raun „femínískt
inngrip – aðferð til að setja konur aftur á sinn réttmæta stað í
sýslumann] og prestinn fyrir að hjálpa mér ekki.“ Þorgeir Þorgeirsson, Yfirvaldið, 17–19.
17 Reynolds, „Hannah Kent: From Adelaide to Icelandic noir“.
18 „Hannah Kent answers questions from our reading group“, 350–351.
19 Reynolds, „Hannah Kent: From Adelaide to Icelandic noir“.
20 „Hannah Kent Answers Questions From Our Reading Group“, 351.
21 „Hannah Kent Discusses Burial Rites and Speculative Biography“.
22 Cooper og Short, „Introduction: Histories and heroines“, 2–3.
„TILLAGA AÐ LÍFI“ : UM ÖRLÖGIN Í NORÐRINU OG ENDURSKÖPUN AGNESAR Í
NÁÐARSTUND EFTIR HÖNNUH KENT
10.33112/millimala.14.1.5