Milli mála - 2022, Side 113
MILLI MÁLA
112 Milli mála 14/2/2022
Útdráttur
„Tillaga að lífi“: Um örlögin í Norðrinu og
endursköpun Agnesar í Náðarstund
eftir Hönnuh Kent
Ástralska skáldkonan Hannah Kent varð heltekin af sögu Agnesar
Magnúsdóttur þegar hún dvaldi eitt ár á Íslandi sem skiptinemi.
Kent varði mörgum árum í að rannsaka ævi Agnesar og morðin á
Illugastöðum árið 1828. Hún skrifaði skáldsöguna Náðarstund um
Agnesi samhliða doktorsrannsókn í ritlist og vildi þar vinna gegn
staðalímyndum sem einkenndu túlkanir á Agnesi og lýsa Agnesi
á margræðari hátt. Náðarstund er söguleg skáldsaga með femíníska
endurskoðun í brennidepli sem setur fram „tillögu“ að mögulegu lífi
Agnesar. Stuðst er við ritaðar heimildir, tengdar dómsmáli Agnesar,
sem mynda eins konar sagnfræðilegan ramma í frásögninni, en innan
hans er sögu Agnesar komið á framfæri í ljóðrænni fyrstu persónu
frásögn, ásamt stuttum köflum þar sem sjónarhorni annarra persóna
varðandi Agnesi er lýst. Saman vinna þessi mismunandi sjónarhorn
gegn staðalímyndinni sem Kent vill afbyggja. Náðarstund er einn-
ig skáldsaga sem setur Ísland og Norðrið í forgrunn, en sögusviðið
myndar kjarnann í lýsingunni á Agnesi og hennar ólánssama lífi.
Bókin er á margan hátt drungalegur ástaróður til Íslands þar sem
landslag, veður og náttúra eru þungamiðjan. Þetta eru kraftar sem
móta og ákvarða líf sögupersónanna, sérstaklega Agnesar, því þótt
þeir veiti Agnesi vissulega ánægju og hugarfró snúast þeir að lokum
gegn henni, hneppa hana í fjötra og bera á vit örlaganna. Ýjað er að
ákveðinni hringferð í sögu Agnesar, náttúru og umhverfi lýst á þann
hátt að gefið er í skyn það sem koma skal, og tengingin milli veðurs
og mannlegs hlutskiptis undirstrikuð. Að lokum er minnið um
drauma og fyrirboða mikilvægt í meðförum Kent á sögu Agnesar.
Lykilorð: Hannah Kent, Agnes Magnúsdóttir, endurskoðunarhyggja
og femínismi, Norðrið, landslag/náttúra
„TILLAGA AÐ LÍFI“ : UM ÖRLÖGIN Í NORÐRINU OG ENDURSKÖPUN AGNESAR Í
NÁÐARSTUND EFTIR HÖNNUH KENT
10.33112/millimala.14.1.5