Milli mála - 2022, Síða 144
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 143
Útdráttur
Laumast út um bakdyrnar
Höfundur og sköpulag konunnar í
A hora da estrela eftir Clarice Lispector
Í þessari grein er tekist á við síðasta skáldverkið sem brasilíski rithöf-
undurinn Clarice Lispector birti á meðan hún lifði, A hora da estrela,
eða Stund stjörnunnar. Margbrotið skáldverk, þó smátt sé í sniðum,
sem kalla mætti sjálflýsandi skáldsögu, sjálfsögu eða „sögusögn“ sem
tekst beinlínis á við eigin tilurð. Þetta er saga af sögu, því að eitt
helsta sköpunarverk Lispector er sögumaðurinn Rodrigo S.M. sem
gerist höfundur og skapar persónuna Macabéu og um leið sjálfan
sig. Því mætti jafnvel tala um eins konar sköpunarsögu. Bókin segir
einum þræði frá sambandi höfundar og sköpunarverks, skapara og
persónu, og veltir upp flóknum og áleitnum spurningum um sköp-
unarferlið, skáldskapinn og hina hliðina á speglinum; veruleikann,
samfélagið, heiminn. Þetta er saga sem fjallar með beinum hætti
um skáldskap og varpar töfrandi ljósi á ást og sköpun, líf og dauða,
veruleika og sköpunarverk. Hún varpar sérstöku ljósi á þau ýmsu frá-
sagnarsvið sem skáldsagan er ofin úr, þar sem mörkin á milli þeirra
eru dregin inn í skáldskapinn sjálfan og raunhöfundur, innbyggður
höfundur, söguhetja og lesandi rekast á og renna nánast saman. Í
grundvallaratriðum er um að ræða verk sem skrifað er af kvenhöf-
undi og fjallar um karlhöfund sem skapar kvenpersónu um leið og
hann skapar sjálfan sig svo að úr verður forvitnilegt ástarsamband
sem hrífur lesandann með sér. Hér verður rýnt í „karlhöfundinn“
innan sögunnar og sköpun söguhetjunnar, kvenpersónu; ferli sem
um margt einkennist af sambandi ástar og eyðileggingar og verður
enn flóknara en ella þegar lesandinn er dreginn inn í það ásamt
raunhöfundinum, Clarice Lispector.
Lykilorð: Clarice Lispector, Hour of the Star, brasilískar bókmenntir,
sjálfsögur, bókmenntagreining
ARNÓR INGI HJARTARSON