Milli mála - 2022, Page 174
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 173
Molières er tungumálið. Hann blekkir ekki aðeins konur, hann
blekkir alla með snilldarlegu orðfæri sínu. Þjónn hans, Sganarelle,
er sá eini sem hann fær ekki blekkt. Don Juan sýnir honum siðleysi
sitt bæði í hátterni og hugsun, siðleysi sem hann tjáir af svo mikilli
andans list að það vegur að grunnstoðum heilbrigðrar skynsemi.
Samskipti hans við Sganarelle, leikpersónu af alþýðuættum, sem fær
mikið vægi í leikriti Molières, eru því háalvarleg og skopleg í senn.
Einnig er stundum talað um „Herra Purgon“2 eða „Diafoirus“3
þegar átt er við fávísan lækni sem er líklegri til þess að gera út af við
sjúkling heldur en að lækna hann. Þá er hægt að líkja sumum hvers-
dagslegum atvikum við fræg atriði úr leikritum Molières. Dæmi um
þetta er herra Jourdain í Le Bourgois gentilhomme (Uppskafningurinn)
sem verður yfir sig hrifinn þegar það rennur upp fyrir honum að hann
tjáir sig í óbundnu máli. Herra Jourdain er maður af borgarastétt sem
hefur komist í álnir og reynir að líkjast aðlinum með því að herma
í einu og öllu eftir aðalsmönnunum við hirðina. Hann er þó með-
vitaður um fáfræði sína og verður sér úti um einkatíma í heimspeki.
Lærimeistarinn kennir honum nokkur undirstöðuatriði í málfræði
og upplýsir hann sem sagt um að hann tjái sig í óbundnu máli þegar
hann talar. Þannig má segja „eins og lausamálið hans herra Jourdain“
til þess að gera gys að þeim sem uppgötvar einhverja almenna og
augljósa þekkingu eins og um nýmæli væri að ræða.
Þessi eiginnöfn sem orðin eru að samnöfnum í franskri menningu
geta þó hindrað dýpri nálgun að leikritum Molières. Þegar talað
er um að einhver sé „Tartuffe“ er átt við hræsnara sem maður gæti
freistast til að leggja traust sitt á þar sem hann gefur sig út fyrir að
vera framúrskarandi vandaður maður. Þið munið að Tartuffe er trú-
maður utan kirkjunnar sem kemur sér fyrir á heimili efnaðrar fjöl-
skyldu af borgarastétt og heillar heimilisföðurinn, Orgon, með því
að gera sér upp ákafa trúrækni. Hann tekur upp á því að „leiðbeina“
heimilisföðurnum (þ.e. stjórna honum) í þeim tilgangi að kvænast
dóttur hans – og að lokum að hafa af honum aleiguna. Honum tekst
ekki ætlunarverk sitt, en kemst þó nærri því þrátt fyrir rökstudd
andmæli allra fjölskyldumeðlima Orgons. Það þarf íhlutun konungs-
2 Skáldað nafn dregið af sögninni purger sem þýðir að hreinsa, tæma eða láta laxera.
3 Skáldað nafn samsett úr nafnorðinu diarrhée sem þýðir niðurgangur og sögninni foirer sem er
óformlegt málsnið og þýðir að klikka eða mistakast.
HÉLÈNE MERLIN-KAJMAN