Milli mála - 2022, Side 182
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 181
þeim líkt við skottulækna. Þeim var einnig ofviða að hughreysta
sjúklinginn. Orðræða þeirra virtist ekkert hafa með sjúkdómsein-
kennin að gera og það í sjálfu sér var mjög kvíðvænlegt. En samt leit-
uðu menn til lækna því án þeirra voru veikindin enn uggvænlegri.
Það er óhætt að gera ráð fyrir því að Molière hafi verið veikur, án
þess að veikindi hans hafi verið óyggjandi – eins og gjarna vill verða.
Við getum reiknað með að veikindi hans hafi ekki verið óyggjandi,
hvorki fyrir hann sjálfan né fyrir aðra, svo lengi sem hann stóð í báðar
lappir. Molière tjáir í gamanleik sínum upplifun sem er augljóslega
sönn. Ég læt mér nægja að minnast á 5. atriði í 3. þætti. Argan, eða
öllu heldur Béralde mágur hans, í hans stað – hefur neitað að þiggja
stólpípuna sem herra Fleurant lyfsali hafði tekið til handa honum og
þar með hefur hann ekki hlýtt læknisráðum herra Purgon. Sá síðast-
nefndi stormar inn og upphefur eins konar læknisfræðilega bölvun,
spáir fyrir Argan heilli flóðbylgju af banvænum sjúkdómum með
ógnvænlegum nöfnum („bradypepsie“,6 „dyspepsie“,7 „apepsie“,8 „liente-
rie“,9 „dyssenterie“,10 „hydropisie“11) sem öll hafa endingu sem rímar
við „sviptingu lífs“ („privation de la vie“). Spaugið í þessu atriði er
ómótstæðilegt og byggir á svimandi hrynjandinni í uppspunanum,
dauðadóminum og því hvernig hinn auðtrúa Argan brotnar niður og
hrópar upp yfir sig: „Ó, góður Guð, ég er dáinn.“ Argan er sannar-
lega fyndinn á leiksviðinu. En handan hins stórkostlega orðaflaums
sem kemur okkur til að hlæja dátt að vitleysunni í honum gætum
við hæglega fundið í okkur sjálfum óttann sem þessi sama brjálsemi
gæti valdið okkur ef við værum ekki sett í aðstæður áhorfenda í
heimi leikhússins. Það þyrfti ekki annað til en að verða, líkt og
Argan, fyrir formælingum einhvers fulltrúa læknavísindanna. Við
hlæjum að skottulækninum vegna þess að við horfum á hann utan
frá, með gagnrýnum augum. En gamanleikurinn sýnir einnig starfs-
stéttina sem hefur líf og dauða í hendi sér – eins konar djöfullegt
vald, holdgert innan samfélagsins.
Töfrandi og sláandi formælingin veldur ofsahræðslu hjá Argan en
6 Hæg melting.
7 Meltingartruflanir.
8 Þarmalömun.
9 Iðrasótt.
10 Annað orð yfir iðrasótt.
11 Vatnssótt.
HÉLÈNE MERLIN-KAJMAN