Milli mála - 2022, Síða 183
MILLI MÁLA
182 Milli mála 14/2/2022
vekur hlátur hjá okkur. Hláturinn verður til þess að slíta okkur frá
skelfingunni og „hreinsa“ okkur af henni. Þannig getur gamanleik-
urinn framkallað tilfinningalega útrás (kaþarsis). Gamanleikurinn
sjálfur er besti læknirinn.
Því þegar öllu er á botninn hvolft hefur þetta leikrit enn fremur
þá sérstöðu að sýna á leiksviðinu áhrifin af þeirri tilfinningalegu út-
rás sem leikurinn hefur á Argan. Argan er alltaf jafn einfaldur og
trúir því að dóttir hans sé dáin þegar hún hrópar í þeim tilgangi að
sleppa undan refsiprikinu: „Æ, pabbi, þú meiddir mig. Bíddu, ég er
dáin“ og svo „þykist hún vera dáin“.12 Síðar í leikritinu verður hann
áhyggjufullur þegar þjónustustúlkan Toinette hvetur hann til að
látast vera dáinn til að sannreyna tilfinningarnar sem eiginkona hans
ber til hans: „Er ekki hættulegt að þykjast vera dáinn?“13 Argan lærir
sem sagt að leika sér að dauðanum með því að leika dauðann.
Með þessum gamanleik framfylgir Molière þeirri grundvallar-
kenningu stóumanna að maður geti vanist dauðanum með því að
hugsa um hann og þannig áunnið sér frelsi. Hann umturnar þrá-
leitinni tilhugsuninni um dauðann með því að tengja martröðina
og skelfinguna sem henni fylgir við þá vellíðan og gleði sem skapast
með leiklistinni.
Hvað mig varðar, það sem ég heyri, það er hvernig Molière háði
baráttu á landamærum lífs og dauða, gleði og ótta, þegar hann
skrifaði Ímyndunarveikina − og það á þann ákafasta og hugmynda-
ríkasta hátt sem hægt er að hugsa sér. Það er þessi barátta sem ævi-
söguritarar Molières vegsama þegar þeir leggja áherslu á hetjulega
framgöngu leikarans sem lék hlutverk sitt bæði í andstöðu við og í
nánu samneyti við eigin persónu, í leik sem enn í dag rýfur mörkin
milli leiksviðs og áhorfendasalar, á fjórum leiksýningum áður en
hann dó. Það er þessi barátta sem tilgáta Georges Forestier afneitar.
En þá tilgátu er ekki hægt að sanna.
Guðrún Kristinsdóttir þýddi úr frönsku.
12 Sama rit, Le malade imaginaire, 2. þáttur, 8. atriði, bls. 687.
13 Sama rit, Le malade imaginaire (leikgerð frá árinu 1682), 3. þáttur, 11. atriði, bls. 737.
MOLIÈRE
10.33112/millimala.14.1.8