Milli mála - 2022, Síða 195
MILLI MÁLA
194 Milli mála 14/2/2022
andliti Leós XIII., og sjálfur Novograd-presturinn fitlaði með ann-
arri hendinni við kínverskt talnaband og blessaði með hinni nýfætt
Jesúbarnið.
Í fimm mánuði skreið Apolek, bundinn í tréstól, um veggi,
hvelfingar og útskot.
– Þér hafið dálæti á kunnuglegum andlitum, kæri pan Apolek,
sagði presturinn eitt sinn, þegar hann hafði borið kennsl á sjálfan sig
í hópi spámannanna og pan Romuald, í afhoggnu höfði Jóhannesar.
Hann brosti, gamli presturinn, og sendi bikar af koníaki til lista-
mannsins þar sem hann vann í hvelfingunni.
Síðan lauk Apolek við síðustu kvöldmáltíðina og grýtingu Maríu
Magdalenu. Einn sunnudaginn afhjúpaði hann myndskreytta vegg-
ina. Nafntogaðir betri borgarar, sem presturinn hafði boðið, þekktu
Janek, halta trúskiptinginn, í Páli postula og í Maríu Magdalenu
sáu þeir gyðingastúlkuna Elku, dóttur óþekktra foreldra og móður
margra götubarna. Hinir nafntoguðu betri borgarar kröfðust þess að
málað yrði yfir þessi helgispjöll. Presturinn hótaði guðlastaranum
öllu illu en Apolek málaði ekki yfir myndskreytta veggina.
Þannig hófst hið dæmalausa stríð milli voldugs líkama kaþólsku
kirkjunnar annars vegar og áhyggjulausa guðsmálarans hins vegar.
Stríðið stóð í þrjá áratugi. Við lá að þessi atburður gerði flækinginn
hógværa að upphafsmanni nýrrar trúvillu. Og þá hefði hann orðið
torræðastur og hlægilegastur allra þeirra stríðsmanna sem stormasöm
saga rómversku kirkjunnar, með öllum sínum hálfkveðnu vísum,
hafði komist í kynni við, stríðsmaður sem fór um jörðina í sæluvímu
með tvær hvítar mýs í barminum og sett af hárfínum penslum í
vasanum.
– Fimmtán zlotý fyrir guðsmóðurina, tuttugu og fimm zlotý fyrir
hina heilögu fjölskyldu og fimmtíu zlotý fyrir síðustu kvöldmáltíðina
með öllum ættingjum kaupandans. Óvin kaupandans er hægt að
mála sem Júdas frá Ískaríot, fyrir auka tíu zlotý. Þetta kunngerði pan
Apolek bændum í nágrenninu þegar hann hafði verið rekinn burt úr
kirkjunni sem var í smíðum.
Enginn skortur var á pöntunum. Og ári síðar, þegar sendinefnd á
vegum erkibiskupsins í Zhitomír, sem presturinn í Novograd hafði
kallað á vettvang með hamslausum erindisbréfum, kom á staðinn
fann hún í vesælustu og verst þefjandi kotum þessar ægilegu fjöl-
PAN APOLEK
10.33112/millimala.14.1.12