Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 37

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 37
sá aflgjafi, sem knýr hvert einstakt hjól, en afrek vélarinnar er framleiðsla til fullnægingar allra þörfum. Samvinnan er eftir eðli sínu samtök framleiðenda í sömu atvinnugrein til þess með samstarfinu að framleiða vörur með betri árangri en einstaklingarnir geta gjört eða til þess að halda uppi sem hæstu verði á slíkum vörum eða samtök neytenda til þess að ná sem beztum innkaupum á nauðsynjum. Þegar slík frjáls samtök miða að bættri eða aukinni framleiðslu eða fyrirgreiðslu frjálsra viðskipta, eru þau bæði réttmæt fyrir þátttakendur og gagnleg fyrir heildina. Þegar þau miða að því einu að standa á verði um sérhagsmuni þátttakendanna (sölusamlög, innkaupafélög), eru þau líka réttmæt, meðan ekki gengur svo langt, að verði til hindrunar framleiðslu eða viðskiptum, og til marks um, hvort svo sé, má venjulega hafa það, hvort frjáls samkeppni sé útilokuð eða ekki. Ýmis dæmi eru þess erlendis, að samvinna framleiðenda hefur orðið svo víðtæk, að nálgazt hefur einokun á hinni framleiddu vörutegund. - Hafa ýmis lönd tekið í lög ákvæði til þess að fyrirbyggja slíkt, byggt á því, að réttmætir hagsmunir neytenda muni verða fyrir borð bornir, þegar samtök eru orðin svo víðtæk, að frjáls samkeppni kemst ekki að. Einnig hafa ýmis lönd sett lög til verndar réttum reglum frjálsrar samkeppni umfram það, er felst í hegningar- lögum og annarri almennri löggjöf. Hér á landi hefir talsvert öflugur samvinnu- félagsskapur neytenda starfað nú í meir en mannsaldur, þar sem eru kaupfélögin. Hefir hann einkum náð útbreiðslu meðal bændastéttarinnar. Sumir af forkólfum þess félagsskapar virðast hafa gert sér vonir um, að hann myndi reynast lyftistöng fyrir landbúnaðinn og reynast 35

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.