Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 49

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 49
að leggja til árlega að öllu leyti stofnfjármuni í ný atvinnufyrirtæki handa þessum 1000 ungu mönnum, sem við bætast, eða þá í tilsvarandi aukningu á stofnfjármunum þeirra fyrirtækja, sem til eru áður, þannig að þau geti fært út kvíarnar og aukið fólkshald sitt. Hvaðan á nú öll þessi fjármunaaukning að koma? Aðeins tvær leiðir eru til. Annaðhvort verður hún að myndast af afrakstri framleiðslunnar í landinu á þann hátt, að einungis nokkur hluti afrakstursins gangi til árlegrar neyzlu eða eyðslu og til viðhalds og endurnýjunar þeirra fjármuna, sem til eru, en nægilegur afgangur verði eftir óeyddur til útvegunar allra þeirra stofnfjármuna, sem með þarf, bæði handa nýja fólkinu, sem bætist í hinn starfandi hóp, og til umbóta á högum allra. Eða þá að fjármagnið verður að fá að láni frá útlöndum. Síðari leiðin er ófær til lengdar, því að þá fylgir henni sívaxandi vaxtagreiðsla til útlanda, og endar með því, að þjóðin verður ósjálfstæður vinnuþræll annarra þjóða. Hins vegar getur verið gagnlegt að grípa til erlendrar lántöku í hófi og um stundarsakir, þegar sérstakar ástæður gera það nauðsynlegt í bili eða arðvænlegt. Sérhver þjóð verður að leggja stund á það að eyða ekki meiru af afrakstri efnahagsstarfsemi sinnar en svo, að árlega verði nægilegt eftir til þess að fullnægja fjármagnsþörfum hennar sjálfrar. Og fjármagnsþarfirnar eru tiltölulega mestar og brýnastar hjá þjóð eins og Islendingum, sem eru að berjast við að komast úr bláfátækt í bjarglegar ástæður. Þess vegna ríður ennþá meira á því hér en annars staðar að halda eyðslunni sem mest í hófi, en ýta með öllu skynsamlegu móti undir fjársöfnun og efnaaukningu. 47

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.