Úrval - 01.04.1944, Page 18
16
ÚRVAL
nokkurt annað skip, sem byggt
hefir verið.
Lektron er hægt að nota til
vöruflutninga, sem tankskip eða
til herflutninga, og Hayes er
með áætlanir á prjónunum um
að byggja heilan flota af 10.000
smál. skipum sömu tegundar,
sem nota má til herflutninga.
Hafið þér nokkurn tima reynt
að beygjasteinsteypmola, teygja
hann eða láta hann hoppa eins
og gúmmíknött? Gerið ykkur í
hugarlund steinsteypuklump,
sem hægt er að saga í sundur
með venjulegri sög! ímyndið
yður steinsteypuhellu, sem er
næstum eins létt og tré og svoi
fjaðurmögnuð og sveigjanleg,
að hægt væri að beygja hana í
hring, eins og hún væri gúmmí!
Yður finnst þetta fjarstæða.
En einmitt þannig er stein-
steypa sú, sem Hayes hefir
fimdið upp.
Þó að skrokkurinn á Lektron
sé aðeins 114 þumlungur á
þykkt, er hann jafn sterkur og
endingarbetri en 4 þumlunga
skrokkur á venjulegu steinskipi.
Með því að nota vikur verður
steypan 50% léttari en venjuleg
steypa.
Þegar opinber skipaskoðun
fór fram á Lektron áður en
honum var hleypt af stokkun-
um, var hann látinn ganga und-
ir þá mestu þolraun, sem nokk-
urt skip getur gengið imdir.
Honum var lyft upp á báðum
endum, án þess nokkur stuðn-
ingur væri undir miðhlutanum.
Einn skoðunarmanna viður-
kenndi hreinskilnislega, að hann
hefði búizt við að sjá Lektron
brotna í tvennt, en skrokkurinn
seig ekki brot úr þumlung. Því
næst var fimm smálesta þunga
bætt ofan á miðju skipsins
(helming skipsþungans) og seig
það þá eixm sextánda úr þuml-
ung, en hvergi sáust í því brest-
ir eða sprungur. Ekkert jám-
skip hefði þolað slíka raun án
þess að bogna. Járn- eða stál-
skip eru styrkt með ótal bönd-
um og bitum, en í Lektron eru
engar slíkar styrktarstoðir, all-
ur styrkleikinn er fólginn í
steypuskrokknum.
Hayes heldur því fram, að
framleiðsla stórra steinskipa sé
miklu fljótlegri en jámskipa og
allt að 30% ódýrari, af því að
notast má að miklu leyti við
ófaglærða verkamenn. Auk þess
sem þau yrðu miklu sterkari,
mundu þau verða helmingi hrað-
skreiðari og taka helmingi meiri
farm, af því að í þeim eru engar