Úrval - 01.04.1944, Síða 34
32
ÚRVAL
hann væri blindur síðustu 25
árin, hélt hann samt ótrauður
áfram ævistarfi sínu.
Gústaf Dalén fæddist árið
1869 á bóndabæ í Svíþjóð. Hann
hafði óbeit á bústörfum þegar
í æsku, og fyrsta uppfinning
hans var þreskivél, knúin með
gömlum rokk; í henni afhýddi
hann baunaforða vetrarins.
Næsta uppfinning hans var
furðusmíð nokkur, er átti að
gera honum kleift að sofa leng-
ur á rnorgnana, en Dalén var
alla ævi sína ákaflega morgun-
svæfur, og gerði sig ekki ánægð-
an með minna en 9 stunda svefn
á hverri nóttu.
Hann tók gamla klukku og
setti hana í samband við spólu,
sem hún átti að snúa á tilsett-
um tíma. Spólan kveikti á eld-
spýtu og með undraverðu kerfi
af sveifum, snúrum og hjólum
lét hann eldspýtuna kveikja á
lampa. Yfir lampglasinu hékk
lítil kaffikanna. Eftir 15 mínút-
ur setti klukkan af stað hamar,
sem lamdi í sífellu á járnplötu
og Gústaf vaknaði; búið var að
kveikja á lampanum og kaffið
tilbúið.
Hann var innan við tvítugt,
þegar hann fór til Stokkhólms á
fund De Lavals, föður skilvind-
unnar, til að sýna honum mjólk-
urmæli, er hann hafði fundið
upp. „En hvað þetta er ein-
kennileg tilviljim,“ varð De La-
val að orði, og svo sýndi hann
piltinum teikningar af næstum
alveg eins áhaldi, sem hann
hafði sótt um einkaleyfi á. Ungi
Dalén bað strax um vinnu í De
Laval verksmiðjunum. „Ekki
strax,“ svaraði De Laval gamli.
„Aflaðu þér fyrst góðrarmennt-
unar.“
En eldri bræður Gústafs voru
famir að heiman, og varð hann
því að vera kyrr heima, hvort
sem honum líkaði betur eða
verr.
Skömmu seinna varð hann
ástfanginn af 15 ára stúlku, en
er hann minntist á hjónaband
við hana, svaraði hún því til, að
hún giftist ekki bónda. Þetta
herti enn meira á löngun hans
að yfirgefa búskapinn og læra
vélfræði. Og er hanh var 23 ára
að aldri fór hann að heiman, og
hóf nám við tækniskóla. Hann
útskrifaðist þaðan með ágætum
vitnisburði, og lagði svo leið
sína til Sviss til framhaldsnáms.
Eftir 5 eifið ár var hann
reiðubúinn að byrja starf í De
Laval verksmiðjunni. Hann
giftist stúlkunni, sem hafði beð-