Úrval - 01.12.1952, Side 44

Úrval - 01.12.1952, Side 44
42 ÚRVAL verður enginn þrýstingur á vatn- ið í glasinu ofan frá eða frá hliðunum. En neðan frá, þar sem pappaspjaldið er, þrýstir loftið á spjaldið og það þrýstir aftur á vatnið. Þú býst við að vatnið steypist úr glasinu af því að þyngdaraflið togar það nið- ur. En þrýstingur loftsins á spjaldið neðan frá er meiri en aðdráttaraflið, sem togar í vatnið, og af því að spjaldið fell- ur þétt að barmi glassins svo að ekkert loft kemst inn í það til að þrýsta ofan á vatnið, er eins og spjaldið sé „límt“ við glasið. En hvað skeður ef þú hleypir svolitlu lofti inn? Reyndu það. Ýttu með fingri á brún spjalds- ins og hleyptu þannig tveim eða þrem loftbólum inn. Meira þarf ekki, vatnið steypist samstundis úr glasinu. „Fer í elíl og brennur ekki“. Það er hægt að hita hluti á ýmsa vegu. Ein aðferðin er sú að leiða hitann. Dæmi: Leggðu pening á vasaklút og strengdu klútinn þétt utan um peninginn þannig að klúturinn falli þétt að annarri hlið hans. Hvað skeður ef þú berð logandi sígarettu eða eldspýtu að klútnum þar sem hann er strengdur yfir pening- inn? Þaðkviknarekki í klútnum, eins og við hefði mátt búast. Ef þú vilt sanna vantrúuðum áhorfanda að klúturinn sé ekki eldfastur, þá taktu þeninginn úr honum og berðu eldinn að. Það kernur undir eins gat á klútinn. Peningurinn virðist á einhvern dularfullan hátt koma í veg fyrir að kviknað geti í klútnum.. Hvernig má það ske? Hlutir þurfa að hitna upp að vissu marki til þess að kviknað geti í þeim, og er það kallað brennslumark þeirra; er það mjög breytilegt eftir því hver hluturinn er. Þegar logandi eld- spýtan er borin að klútnum streymir hiti frá henni í klútinn og í gegnum klútinn í peninginn. Flestir málmar leiða hita miklu betur en klútur. Hitinn frá eld- spýtunni streymir svo ört út um allan peninginn að klúturinn fær ekki tóm til að hitna upp í brennslumark sitt og þessvegna kviknar ekki í honum. Að breyta víni í vatn. Þegar þú vilt losna við papp- írsruslið í pappírskörfunni þinni geturðu farið með það að húsa- baki og brennt það þar. Hluti af pappírnum breytist í ósýni- lega lofttegund þegar hann sam- einast súrefni loftsins við brun- ann. Væri það ekki handhægt að geta losnað við blekblett í flík með því að láta hann sam- einast súrefni og breytast þann- ig í ósýnilegt efni? Það er ekki hægt með því að brenna blett- inn, því að þá brennur flíkin líka. Við skulum gera það með því að nota súrefni, ekki úr loftinu, heldur úr vatni! Vatn er nefni- lega samband af vetni og súr- efni. 1 stað þess að setja blek-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.