Úrval - 01.12.1952, Síða 47
GALDRAR EÐA VÍSINDI?
45
flatt, en efra borðið dálítið kúpt.
Þegar vængurinn klýfur loftið
(munið að það eru skrúfurnar
sem draga flugvélina áfram),
þarf loftstraumurinn sem fer
fyrir ofan vænginn að fara lengri
leið en loftstraumurinn sem fer
undir hann, og verður þrýst-
ingurinn þá minni fyrir ofan
vænginn en neðan hann. Þetta á
sinn þátt í því að halda flugvél-
inni á lofti.
Dansandi mölkúlur.
Hefurðu nokkurn tíma séð
mölkúlur (naftalínkúlur) dansa?
Þú getur látið þær fá sér snún-
ing með aðstoð kolsýru, sem
leyst er upp í vatni.
Bættu hálf um bolla af ediki út
í hálft glas af vatni. Settu f jórar
eða fimm mölkúlur í glasið. Þær
sökkva af því að þær eru eðlis-
þyngri en vatn. Hrærðu nú
vandlega saman við vatnið einni
teskeið af sódadufti. Sódaduftið
gengur í samband við edikið og
myndast þá kolsýra. í fyrstu
leysist kolsýran upp í vatninu,
en þegar það er orðið mettað
af kolsýru taka að myndast
kolsýrubólur í vatninu. Ból-
urnar setjast utan á mölkúl-
urnar. Þær auka flotmagn kúln-
anna og þar kemur að lokum að
þær verða léttari en vatnið og
stíga hægt upp á yfirborðið.
Bólurnar á þeim hluta mölkúl-
unnar sem kemur upp úr vatn-
inu springa. Sá hluti kúlunnar
verður þá þyngri og hún veltur
yfir sig. Við það springa enn
fleiri loftbólur og þar kemur að
lokum að mölkúlan sekkur aft-
ur. En kolsýrumyndunin heldur
áfram í vatninu, og brátt hefur
safnast svo mikið af loftbólum
á kúluna að nýju, að hún stígur
upp á yfirborðið aftur.
Þannig eru kúlurnar sífellt á
hreyfingu, sumar á leiðinni upp,
aðrar á leiðinni niður og er þetta
sannkallaður hringdans. Þegar
loftbólumyndunin er að mestu
hætt, skaltu bæta í ediki ogsóda-
dufti. Öðru fyrst. Ef ekki mynd-
ast loftbólur, þá bættu hinu út
í líka.
Isbrella.
Settu ísmola í vatn og spurðu
gesti þína hvort þeir geti náð
honum upp úr með tvinnaspotta,
án þess að snerta molann með
höndunum.
Þeir munu sjálfsagt reyna að
bregða spottanum utan um mol-
ann, en munu fljótt komast að
raun um að þannig er ekki hægt
að ná honum upp úr. Nú kem-
ur þú til með þekkingu þína á
lögmálum náttúrunnar. Þú nærð
þér í svolítið salt, vætir spott-
ann vel í vatni, leggur hann of-
an á ísmolann og stráir svolitlu
salti ofan á molann þar sem
spottinn liggur á honum. Svo
bíðuður í hálfa mínútu og þegar
þú tekur í spottann, hangir ís-
molinn við hann! Hann fraus við
molann af því að saltið bræddi
fyrst svolítið af molanum og
kældi vatnið niður fyrir frost-
mark.