Úrval - 01.12.1952, Side 58

Úrval - 01.12.1952, Side 58
56 ÚRVAL, semi. Þegar hjón, sem hafa notað það, vilja eignast barn, hætta þau bara að taka það. En það verður að taka það daglega, og ekki aðeins einu sinni. Dr. Sieve lét eiginmenn- ina taka það þrisvar á dag og eiginkonurnar fjórum sinnum. Ástæðan til þess er sú, að magn efnisins í blóðinu verður stöð- ugt að vera fyrir ofan tiltek- ið lágmark, ef það á að koma að tilætluðum notum. Einnig verða bæði hjónin að taka lyfið í tíu daga áður en áhrif þess geta talizt örugg. Neikvæður árangur varð hjá tvennum hjónum, eins og áður segir, og stafaði hann af því að önnur hjónin tóku ekki lyfið í 40 daga, í sumarleyfi sínu, en hin, sem voru drykkfelld, lentu á viku „túr“ og tóku það ekki á meðan. Öll hin hjónin tóku það reglulega og töldu það yfir- leitt litla fyrirhöfn. Konurnar voru á aldrinum 17 til 43 ára. Öll hjónin höfðu áð- ur átt að minnsta kosti eitt heilbrigt bam. Öll voru sjálf- boðaliðar og ekkert þeirra hafði áhyggjur af því að til- raunin mistækist, því að þau voru bæði andlega og efnalega við því búin að eignast börn. Öll lofuðu þau að nota engar aðrar aðferðir til getnaðarvarna meðan á tilrauninni stóð. Hjónin sem tilraunina gerðu notuðu lyfið í 3 til 30 mánuði. Hver um sig hættu þegar þau vildu eignast barn. Af hópnum hættu 123 hjón að taka lyfið, eignuðust börn og byrjuðu síð- an á því aftur. Önnur 97 hjón, sem hættu seinna, eiga nú von á barni. Ekkert hjónanna, sem hætti við lyfið til að eignast barn, varð fyrir vonbrigðum. Lengsti biðtíminn var 9 til 13 vikur. Af þeim konum, sem þungaðar urðu, misstu þrjár fóstur, fimm fæddu fyrir tímann, og á fimm var gerður keisaraskurður. All- ar hinar fæðingarnar voru eðli- legar og börnin heilbrigð. Dr. Sieve telur reynslu þá sem fengin er ekki nægilega til þess að ráðlegt sé að leyfa al- menna notkun , lyfsins. Gera þurfi víðtækari tilraunir og fá frekari reynslu áður það verði sett á markað. — Science News Letter. Sóttvarnir jurtanna. Heggurinn er algengur runni á Norðurlöndum og virðist í fljótu bragði ekki sérlega merki- legur. Blómin láta lítið yfir sér, en angan þeirra er sterk og eins anganin af blöðunum. Þrátt fyrir allt sitt yfirlætis- leysi varð þó heggurinn til að gefa prófessor Boris Tokin ærið umhugsunarefni, og það varð með þessum hætti: Tokin hafði lagt heggkvist hjá glasi af vatni og sett glerhjálm yfir. Eftir nokkrar klukkustundir tók hann glasið undan hjálminum og brá nokkrum dropum af vatninu undir smásjána. Vatn þetta, sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.