Úrval - 01.12.1952, Síða 75
HVERJU Á AÐ SVARA BARNINU?
73
6. Það þarf að taka hálskirtl-
ana úr Kalla, sem er fjögra
ára; a) á að segja honum þaö
á leiðinni til spítalans; h) segja
honum að hann sé að fara að
lieimsækja einhvern á spítalan-
um, svo að hann fari með góðu;
c) segja honum það nokkrum
klukkustundum áður og skýra
fyrir honum hvernig það sé;
d) fullvissa hann um að það sé
ekkert vont?
c) er bezt. Ef þú ferð á bak
við barnið getur reynslan orðið
því mikið áfall. Búðu hann und-
ir það sem í vændum er eins
vel og unnt er, án þess að gera
hann hræddan. Bezt er að þú
getir verið hjá honum þegar
hann sofnar og þegar hann
vaknar af svæfingunni.
7. Það er skynsamlegt að
segja litlu harni þegar það á
von á að eignast systur eða
hróður: a) nokkrum mánuðum
áður; h) nokkrum vikum áður;
c) aðeins nokkrum klukku-
stundum áður?
Segið barninu það að minnsta
kosti mánuði áður — og fyrr
ef það spyr. Ef barnið er við-
búið er minni hætta á afbrýði-
semi. Gerið allar breytingar
(s. s. tilfærslu á rúmum)
nokkru áður, svo að barninu
finnist ekki að það verði að
þoka fyrir ungbarninu. Fað-
irinn ætti. að sýna því sérstaka
umhyggju meðan móðirin er á
fæðingardeildinni, lofa því að
hjálpa til að undirbúa komu
ungbarnsins og einnig við um-
hirðu þess eftir því sem hægt
er. Rétt er samtímis að gefa
því einhver ný „fullorðins rétt-
indi“.
8. Af því að ekkert í heimi
hér er miðað við örvhenta
menn, er bezt að venja örvhent
hörn á að nota hœgri hönd-
ina.
Nei. Þau litlu óþægindi sem
því fylgja að vera örvhentur
eru smámunir í samanburði við
þá andlegu raun sem því fylg-
ir þegar örvhent börn eru knú-
in til að nota hægri höndina.
Þessi áreynsla getur stundum
valdið stami eða erfiðleikum í
lestrarnámi.
9. Sveinn, sem er fjögra ára,
reiðist móður sinni og segir:
,Kg skal drepa þig!“ Hvað á
hún að gera: a) taka því ró-
lega, eins og eðlilegu viðbragði
harns sem reiðist; h) segja
honum að sig taki það sárt að
hann skuli hugsa þannig; c)
láta sálfrœðing rannsaka hann;
d) refsa honum.
a) er bezt. Svarið ekki reiði-
kasti í sömu mynt. ,,Ég skal
drepa þig!“ þýðir sennilega að-
eins: „Ég er bálreiður við þig!“
Vekið ekki hjá barninu sektar-
vitund. Það tekur börnin nokk-
urn tíma að læra að hafa hemil
á skapsmunum sínum og tjá
reiði sína hóflega. Sýnið hæfi-
lega sjálfsstjórn og hjálpið
barninu að skilja ástæðurnar til
reiðikastanna. Og gleðjist með-
an barnið lætur sér nægja að
veita reiðinni útrás í orðum.