Úrval - 01.12.1952, Side 92

Úrval - 01.12.1952, Side 92
ÚRVAL 90 Þegar hann kom til hennar, stóð hún skjálfandi og starði á hann með stórum, hvítum aug- unum. Plógurinn var langt í burtu; dráttartaugarnar höfðu kubbast sundur. Þá varð Dave allt í einu bilt við; hann trúði ekki sínum eigin augum. Það blæddi úr Jenný. Öll vinstri síð- an lagaði í blóði. Hann færði sig nær. Almáttugur guð! Getur það verið að ég hafi skotið múl- asnann? Hann þreif í faxið á Jenný. Hún hörfaði undan, fnæsti, snerist í hring og skók hausinn. „Svona, kyrr nú! Kyrr!“ Þá sá hann gatið á síðu Jennýar, mitt á milli tveggja rif ja. Það var kringlótt, vott og rautt. Kafrauður lækur rann 1 stríðum straumum niður eftir öðrum framfætinum. Góður guð! Ég miðaði ekki á múlasn- ann . . . Hann varð skelkaður. Hann vissi að hann yrði að stöðva blóðrennslið, annars myndi Jenný blæða út. Hann hafði aldrei séð svona mikið blóð á ævi sinni. Hann elti múl- asnann heilan kílómetra og reyndi að ná í hann. Loks stað- næmdist asninn másandi og lyfti stuttum og digrum halan- um upp í hálfhring. Hann náði taki á faxinu og teymdi hann þangað sem plógurinn og byss- an var. Þar stanzaði hann og tók handfylli sína af rakri, svartri mold og reyndi að fylla skotgatið með henni. Jenný titr- aði, hneggjaði og sleit sig lausa. „Kyrr! Kyrr nú!“ Hann reyndi aftur að troða í gatið, en blóðið streymdi eftir sem áður. Fingur hans voru heitir og klistruðust sam- an. Hann nuddaði lófana með mold til þess að reyna að ná blóðinu af þeim. Enn einu sinni reyndi hann að fylla skotgatið, en Jenný vék sér undan og sló aftur undan sér. Hann vissi ekki hvað hann átti að taka til bragðs. Eitthvað varð hann að gera. Hann stökk að Jenný; hún lét hann ekki ná sér. Hann sá rauðan blóðlæk renna niður eftir fæti hennar og mynda poll kringum hófana. „Jenný . . . Jenný . . . ,“ sagði hann lágt og lokkandi. Varir hans titruðu. Henni blæðir út! Hann leit í áttina heim, langaði að fara þangað, langaði að sækja hjálp. En hann sá skammbyssuna liggja þama í rakri, svartri leirmoldinni. Ilann fann það einhvernveginn á sér, að ef hann gerði bara eitthvað, þá myndi þetta ekki vera svona; Jenný stæði þá ekki þarna og væri að blæða út. Þegar hann gekk til hennar í þetta skipti, hreyfði hún sig ekki. Plún stóð kyrr með syfju- leg, dreymandi augu; og þegar hann kom við hana hneggjaði hún lágt og lagðist á hnén, og blóðið gutlaði um framfæturna. „Jenný . . . Jenný . . . “ hvísl- aði hann. Góða stund hélt hún hálsinum beinum; svo hneig höfuð hennar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.