Úrval - 01.12.1952, Page 112

Úrval - 01.12.1952, Page 112
110 XÍRVAL, hafði gert. Meðan hann var að þessu, hafði hann ekki augun af rúmiiiu. Þar var engin hreyf- ing. Eftir að hafa dokað við stundarkorn, læddist hann að stólnum, þar sem fötin hans voru. Fyrst stakk hann seðla- bunkanum í jakkavasann, en svo fór hann að klæða sig. Hann var stundarfjórðung að koma sér í fötin, því að hann varð að fara hljóðlega að öllu. Hann átti í dálitlum erfiðleikum með að hnýta á sig slifsið, án þess að hafa spegil, en hann hugsaði sem svo, og það var mjög skynsam- legt af honum, að það gerði í rauninni ekkert til þó að það væri ekki vel hnýtt. Hann var farinn að líta bjartari augum á lífið. Eftir á að hyggja var þetta bara skemmtilegasta ævin- týri. Loks var hann alklæddur að öðru leyti en því, að hann átti eftir að fara í skóna; hann tók þá upp og ætlaði að fara í þá frammi á ganginum. Hann varð að ganga þvert yfir gólfið til þess að komast fram að dyr- unum. Hann komst þangað án þess að valda hávaða. En dyrn- ar voru læstar. Hann sneri lykl- inum varlega; það ískraði í skránni. ,,Hver er þar?“ Unga konan settist allt í einu upp í rúminu. Nikka brá ógur- lega. Hann reyndi af fremsta megni að láta sem ekkert væri. „Það er bara ég. Klukkan er sex og ég verð að fara. Eg vildi ekki vekja þig.“ „O, ég gleymdi því.“ Hún lagðist aftur út af. „Úr því að þú ert vöknuð, ætla ég að fara í skóna.“ Hann settist á rúmstokkinn og fór í skóna. „Ilafðu ekki hátt, þegar þú ferð. Það er ekki vel liðið hér. Ó, ég er svo syfjuð.“ „Farðu bara að sofa aftur.“ „Kysstu mig áður en þú ferð.“ Hann laut niður að henni og kyssti hana. „Þú ert fallegur drengur og yndislegur elskhugi. Bon voyage.“ Nikka fannst hann ekki vera öruggur fyrr en hann var kom- inn út á götu. Það var orðið bjart af degi. Himinninn var heiður og á höfninni lágu snekkj- ur og fiskibátarhreyfingarlaus á sléttum sjónum. Á hafnarbakk- anum voru fiskimennirnir að búa sig undir dagsverkið. Strætin voru auð og mannlaus. Nikki andaði djúpt að sér fersku morg- unloftinu. Honum leið sérstak- lega vel. Hann gekk mannlega og hnakkakertur upp hæðina og fram hjá görðunum við spila- vítið — döggin glitraði yndis- lega á blómunum í morgunljóm- anum, — þangað til hann var kominn að hótelinu sínu. Nikki fór upp í herbergið sitt og fékk sér heitt bað. Meðan hann var í baðinu, hugsaði hann til þess með ánægju, að hann væri ekki eins mikill aulabárður og sumir héldu. Eftir baðið gerði hann leikfimisæfingar, klæddi sig, gekk frá farangri sínum og fór
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.