Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 11

Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 11
EÐLISSKYN BARNSINS Á UNDUR HEIMSINS 9 Niðri á ströndinni höfum við teygað að okkur angan fjör- unnar þegar lágsjáva er — þessa undursamlegu opinberun, samtvinnaða úr ótal þáttum, ilmi af þangi og fiski og alls- konar furðudýrum, angan af votum sandi og söltum þef af þornuðum klöppum. Ég' vona, að Roger muni síðar kynnast þeim fagnaðarríka unaði, sem fylgir því að anda að sér að nýju angan f jörunnar og sjávar- ins eftir langa fjarveru, því að ilmanin er öllum öðrum skiln- ingarvitum máttugri til þess að vekja minningar, og það er leitt til þess að vita hve lítið við notfærum okkur þennari eigin- leika hennar. Heyrnin getur verið upp- spretta jafnvel enn meiri unað- ar, en til þess er nauðsynlegt að leggja rækt við hana. Ég hef heyrt fólk segja, að það hafi aldrei heyrt söng í skógar- þresti, enda þótt ég viti að bjöllurómur þessa fugls hafi hljómað í húsagarði þess á hverju vori. Með ábendingu held ég að hægt sé að hjálpa börnunum til að leggja hlustir við margskonar hljóðum í kring- um þau. Gefið ykkur tíma til að hlusta og tala um raddir jarð- arinnar og merkingu þeirra — raust þrumunnar, þyt vindsins, gný hafsins og gljáfrið í lækn- um. Og raddir lífsins: ekkert barn ætti að alast upp án þess að hlusta á morgunsöng fuglanna á vorin. Það mun aldrei gleyrna þeirri reynslu sem því fylgir að fara á fætur fyrir dögun og hlusta á þegar fuglalíf skógar- ins vaknar til nýs dags. Fyrstu raddirnar heyrast fyrir dögun. Ef til vill eru það nokkrir kardí- nálar, sem hef ja morgunsönginn með silfurskærri, stígandi rödd. Svo koma trillur gransöngvar- ans, tærar og draumkenndar. í fjarska má heyra nátthrafninn halda áfram tilbreytingarlaus- um nætursöng sínum. Rauð- brystingar, þrestir, söngspörv- ar taka undir hver á fætur öðr- um. í þessum morgunsöng fugl- anna heyrum við æðaslátt lífs- ins sjálfs. En lífið á fleiri raddir. Ég hef lofað Roger því að koma með honum eitthvert kvöld í haust út í garð með vasaljósið til að leita uppi skordýrin, sem leika á litlu fiðlurnar sínar í grasinu og runnunum. Hljóm- kviðu skordýranna má heyra á hverju kvöldi frá miðju sumri og þangað til litlu leikendurnir stirðna í fyrstu næturfrostum haustsins og síðasta röddin þagnar við komu vetrarins. Að leita uppi þessa litlu söngvara með vasaljósi er ævintýri fyrir barnið. Það lærir að skynja leyndardóm og fegurð nætur- innar og hið fjölbreytilega líf sem hún ber í skauti sér. Leikurinn er í því fólginn að hlusta, ekki svo mjög á samspil hinnar miklu hljómsveitar, held- ur hin einstöku hljóðfæri og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.