Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 80
HamJarir í hinu stóra
rihi náttúrunnar:
Þegar sóiin stóð kyrr.
Fulton Oursler skrifar um bókina „Worlds in Collision",
eftir dr. Immanuel Velikovsky.
Þegar WORLD IN COLLISION kom út fyrir nokkrum árum, vakti
hún geysimikla athygli og ýmsir uröu til að skrifa um hana. Bók-
inenntagagnrýnandinn Clifton Fadimcui skrifaði: „Ekki er ólíklegt að
hún eigi eftir að marka jafnafdrifarik timamót og UPPRUNI TEG-
UNDANNA eftir Darwin of PRINCIPIA eftir Newton“. Dr. Gordon
A. Atwater, forstöðumaður stjörnufrœðistofnunar Ameríska náttúru-
gripasafnsins, sagði, að í Ijósi þeirra kenninga sem bókin flytur sé
nú hœgt að „taka undirstöðu vísindanna til endurskoðunar“. — Höf-
undur þessarar umtöluðu bókar, er fœddur í Rússlandi, lagði stund á
náttúruvisindi við Edinborgarháskóla, sögu, lögfræði og læknisfrœði
í Moskvu, líffrœði í Berlin, rannsóknir á starfsemi heilans í Ziirich og
sálkönnun í Vín. Hann settist að í Bandaríkjunum 1939. WORLDS IN
COLLISION skrifaði hann eftir tíu ára víðtækar rannsóknir og sam-
ráð við frœðimenn og sérfrœðinga víða um heim. Dr. Velikovsky hefur
skrifað tvœr bœkur síðan: AGES 1N CHAOS og EARTH IN UPHEA-
VAL, sem er nýútkomin. Úrval mun í nœsta hefti birta gagnmerka
grein um þessar bœkur og er þeim sem þessa grein lesa eindregið
ráðlagt oéð lesa hana.
FYRIR um það bil 25 árum
bar það við í litlum kaup-
stað í Tennessee í Bandaríkjun-
um, að skólastjóri barnaskólans
tók sér fyrir hendur að skýra
fyrir börnunum þróunarkenn-
ingu Darwins. Fyrir þetta brot
á lögum ríkisins, sem banna að
nokkuð það sé kennt í skólum
ríkisins, er fari í bága við kenn-
ingar biblíunnar, var skólastjór-
inn handtekinn og mál höfðað
gegn honum.
Sem verjandi trúarinnar var
leiddur í vitnastúkuna William
Jennings Bryan, sem þrisvar
hafði verið í kjöri til forseta
landsins. Verjandi skólastjór-
ans var C. Darrow, kunnur guðs-
leysingi. Darrow réðst harka-
lega á furðusögur biblíunnar og
þaulspurði Bryan um trú hans
á goðsagnir og ævintýri.
„Trúið þér, Bryan, að Jósúa
hafi látið sólina standa kyrra?“
„Ég trúi því, Darrow!“
„Hefði það þá ekki heldur
verið jörðin, sem stóð kyrr ? Og
ef þér trúið því, haldið þér þá
ekki að ef jörðin stöðvaðist á
braut sinni, þá mundi hún
bráðna upp?“
Darrow virtist tala með valdi
þess, sem hefur þekkinguna að