Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 77

Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 77
SÖGULEG BLÓÐGJÖF Lækna hafði dreymt um það öldum saman, að geta á örugg- an hátt dælt mannsblóði inn í æðakerfið að nýju. Á 17. öld hafði franskur læknir, Jean Den. ys, dælt lambablóði í æð drengs. Fyrir eitthvert kraftaverk hélt drengurinn lífi, enda þótt blóð- flutningur milli tegunda sé gagnslaus og hættulegur, eins og nú er vitað. Aðrar tilraunir höfðu verið gerðar. Á 19. öld hafði verið reynt að dæla blóði í kviðarhol kvenna við barnsburð. En slík- ar tilraunir báru sjaldan árang- ur og enduðu oft með skelfingu. Meginhindrunin var myndun blóðlifra, þegar blóðið var látið renna úr blóðgjafanum í ílát, en færi blóðlifur með þegar blóð var gefið, gat hún valdið ban- vænni æðastíflu. Á fyrstu árunum eftir alda- mótin hafði mikið áunnizt fyrir tilverknað hins ágæta skurð- læknis og lífeðlisfræðings Alexis Carrels, er seinna hlaut Nobels- verðlaun fyrir brautryðjanda- starf sitt í skurðaðgerðum á æðakerfinu. I krafti þekkingar sinnar á æðakerfinu og frábærr- ar leikni í skurðlækningum hafði honum tekizt að tengja saman æðar lifandi hunda. Dr. Crile bjóst nú til að gera sömu djörfu tilraunina á manni. Hann ætlaði að gefa Joseph Miller blóð með því að tengja æðakerfi hans við æðakerfi bróður hans. Sam Miller var við sjúkrabeð bróður síns. Dr. Crile sneri sér að honum og spurði: „Viljið þér gefa dálítið af blóði yðar til þess að bjarga lífi bróður yðar?“ ,,Auðvitað,“ svaraði Sam án þess að hika. „Gott og vel.“ Dr. Crile sneri sér að hjúkrunarkonunni: „Seg- ið þeim að hafa allt reiðubúið í skurðstofunni." Svo sneri hann sér að Sam: „Komið þá með mér.“ í skurðstofunni voru Sam og Joseph lagðir hlið við hlið en með höfuðin öndvei"t. Þeir fengu báðir staðdeifingu í hand. legg. Joseph fór sífellt hrakandi. En þegar byrja skyldi á skurðaðgerðinni, kom babb í bátinn; allar nálarnar sem til voru í skurðarstofunni, voru of grófar til að sauma með hinar grönnu æðar, sem tengja áttu saman æðakerfi bræðranna. Loks kom ein hjúkrunarkonan með hárfína nál, sem hún not- aði við útsaum af smágerðustu tegund. Aftur virtist allt ætla að stranda á því að ekkert girni í skurðstofunni var nógu grannt til þess að sauma með því. Þá var leitaður uppi fín- asti silkidúkur, sem til var á spítalanum, og rakinn úr honum þráður. Nú var hægt að byrja; úln- liðir bræðranna voru lagðir hlið við hlið og dr. Crile risti fyrir. Hann fletti frá slagæðinni í úln- lið Sams og bláæð í úlnlið sjúk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.