Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 32
30
ÚRVAL
fram við verkið. Að því beind-
ist öll gagnrýni þeirra, og eins
gagnrýni höfundarins. I sögu
sem út kom eftir dauða Stalíns
er að heita má sama sagan sögð
á allt annan hátt. Þar kemur
við sögu duglegur en harðlynd-
ur embættismaður og skriffinn-
ur, sem af vítaverðu hirðuleysi
lætur verkamenn sína lifa við
óbærilegar aðstæður til þess að
ná háu framleiðslumarki, sem
hann vonar að muni efla hann
til fi'ama. Það gætir vissulega
meira óánægju en sjálfsgagn-
rýni hjá verkamönnunum, og
það fer heldur ekki á milli mála
að hverjum gagnrýni höfund-
arins beinist. Hneyksli eru af-
hjúpuð af aðdáunarverði hrein-
skilni. 1 sögu Nekrassovs, Home
Toivn, segir frá formanni
flokksskrifstofu, sem gerir sam-
særi við helztu meðlimi flokks-
ins á staðnum til þess að bola
heiðvirðum háskólaprófessor úr
starfi, af því að hann stendur
í vegi fyrir frama hans, og það
fellur í hlut yngsta mannsins
í flokknum að afhjúpa samsær-
ið eftir að hann hefur orðið að
þola strangar yfirheyrslur í
flokknum. I sögu Panova,
Sea-son of the Year, notfæra
spilltir embættismenn sér hús-
næðisskortinn í gróðaskyni, og
allt sveitaþorpið flækist í net
glæpa og svartamarkaðsbrasks.
Mér var tjáð í Moskvu, að
á æðri stöðum óttuðust menn,
að þessi nýja stefna kynni að
leiða til ófrjórrar svartsýni.
d'æpast virðist ástæða til að
óttast það; því að í öllum þess-
um sögum, þar sem flett er of-
an af misbeytingu valds og
rangindum í nútímalífi þjóðar-
innar, er bætt fyrir syndirnar
þegar fréttir af þeim berast til
æðstu stjórnarvalda, og hvaða
vandamál sem upp kunna að
koma er lesandinn skilinn eft-
ir í öruggri vissu um það, að
þjóðin muni með aðstoð for-
ingja sinna leysa þau. En þó
að núverandi ráðamenn og
stefna þeirra verði ekki fyrir
árásum, og að opnast hafi leið
til að gagnrýna fortíðina ein-
ungis vegna dauða Stalíns, ber
mjög að fagna þessari breyt-
ingu.
Fyrir alvarlega rithöfunda
•— þá sem finna hjá sér köllun
til að vitna um samvizku sína
í skrifuðu máli — hlýtur þögn
Stalíntímabilsins að hafa verið
þung raun. Aðeins í fáeinum
skrítnum dæmisögum má finna
þess stað, að sumir þeirra að
minnsta kosti myndu hafa mót-
mælt opinberlega, ef þeir hefðu
getað. I sögu eftir Kassil skapa
tvö börn í ævintýraheimi sín-
um konungsríki á eyju þar sem
bylting verður þegar hetjan
kemur í læstri káetu skips —
bersýnilega hugmynd barnanna
um komu Leníns; en síðan
hrifsar vondur töframaður völd-
in í sínar hendur. Þjónar hans,
vindarnir, eru alls staðar; þeir
skýra honum frá því sem fólk-
ið segir og refsa þunglega þeim