Úrval - 01.08.1956, Page 62

Úrval - 01.08.1956, Page 62
60 ÚRVAL fannst vera vanhelgun á sak- leysi bernskunnar. Frumlegustu uppgötvanir Freuds urðu til við rannsóknir hans á draumlífi, sem veitir greiðastan aðgang að dulvitund- inni. Kenningu sína um eðli og inntak draumlífsins setti hann fram í bók, sem út kom fyrir fimmtíu og sjö árum og er talin merkasta verk hans. Þetta rann- sóknarefni, sem vísindin höfðu svo lengi vanrækt, reyndist frjórra en nokkurn hafði grun- að. Með rannsóknum sínum á draumlífi sjálfs sín og sjúklinga sinna varpaði hann ljósi á þann þátt sem kynlífið á í taugaveikl- un af ýmsu tagi. Freud hélt því fram, að allt tilfinningalíf vort sé uppruna- lega sprottið upp úr frumhvöt- um mannsins, sem vér getum kallað ,,ást“ og ,,hatur“. Hið sífellda stríð milli þessara hvata hefur í för með sér ótal árekstra í dýpri lögum hugans, sem bergmála í hinu meðvitaða tilfinningalífi voru. Án þess að maðurinn geti gert sér grein fyrir því leynist sífellt með hon- um grunur um hættu, sem sprottin er af ótta hans við þessar frumhvatir. Allar gerðir hans stjórnast miklu meira af ótta en hann gerir sér grein fyrir. Hann hefur ótal ráð til að afneita þessum djúpstæða ótta, dulbúa hann eða byggja sér varnir gegn lionum. Mikið af lífsorku hans fer, án þess hann geri sér grein fyrir því, í þessa stöðugu baráttu, og margt í um- gengnis- og samfélagsformum vorum þjónar þeim einum til- gangi að vera vörn í þessu efni. Þessum nýju uppgötvunum sínum beitti Freud nú við rann- sóknir á ýmiskonar sálfræðileg- um vandamálum, svo sem upp- runa listrænnar sköpunar og uppruna trúarbragða, tilurð samvizku og siðgæðisvitundar, uppruna fjölskyldulífsins, þróun mannsins frá víllimennsku til siðmenningar og þeim veilum siðmenningarinnar sem aug- ljósar eru hverjum manni. Margir nafnkunnir vísinda- og fræðimenn víða um heim hafa lokið lofsorði á afrek Freuds sakir frumleiks og dirfsku. Einn af fremstu sálfræðingum nútím- ans, McDougall prófessor, hef- ur komizt svo að orði, að Freud hafi lagt drýgri skerf til þekk- ingar vorrar á mannlegu eðli en nokkur annar maður síðan á dögum Aristótelesar. Kunnur rithöfundur sagði um Freud að hann væri „maður, sem verð- skuldar að teljast í hópi mestu mikilmenna allra alda, maður sem með frábærlega skarpri hugsun sinni varpaði ljósi í dimmustu myrkraskot mann- legrar reynslu og sem í krafti óvenjulega heilsteypts persónu- leika kannaði svið, sem hina hugdjörfustu vísindamenn hafði áður brostið kjark til að kanna. Hann uppgötvaði nýtt megin- land í huga mannsins og kort- lagði það fyrstur manna.“ Hér
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.