Úrval - 01.08.1956, Side 70

Úrval - 01.08.1956, Side 70
68 ÚRVAL óvirku efni hafi einungis þannig áhrif, að sjúklingurinn ímyndi sér að honum líði betur. Við rannsókn á 1082 sjúklingum, sem ýmist fengu virk eða óvirk lyf, kom í ljós að greina mátti sömu lífeðlisfræðilegu áhrif ó- virkra lyf ja og hinna virku. Til dæmis voru athuguð áhrif ó- virkra lyfja á magasýrumynd- ina og kom í ljós, að þau gátu bæði örvað og dregið úr henni. Einnig mátti greina fyrir áhrif óvirkra lyfja, þær breytingar á ljósopi augans, sem deyfilyf valda. Þess var gætt við tilraunirn- ar, að læknarnir gætu ekki fyr- irfram vænzt ákveðinnar niður- stöðu á þann hátt, að þeir voru ekki látnir vita hverjir fengu virk og hverjir óvirk lyf fyrr en tilraununum var lokið. Óvirk lyf hafa reynzt árang- ursrík ekki einungis gegn verkj- um í örum eftir uppskurði. Gegn hósta höfðu þau áhrif á helm- ing sjúklinganna, gegn æða- verkjum í hjarta (angina pec- toris) á 38%, gegn höfuðverk 52%, gegn sjóveiki 58% og gegn kvefi 35%. Þeir sjúkling- ar, sem hér um ræðir, voru und- ir nákvæmu eftirliti, svo að ekki leikur neinn vafi á um niður- stöðurnar. Hin óvirku lyf lækn- uðu t. d. sjóveiki á hálftíma. Öþægilegra aukaverkana verð- ur einnig vart af óvirkum lyfj- um. Sumir sjúklinganna tóku að skjálfa, aðrir fengu útbrot, nið- urgang eða ofsakláða. Enn aðr- ir kvörtuðu undan þurrki í háls- inum, ógleði, höfuðverk, al- mennri vanlíðan, magnleysi, þreytu eða syfju. Skömmu eftir að einn sjúklingur hafði fengið lyf, sem við athugun eftir á reyndist hafa verið óvirkt, fékk hann kláða og óþægileg útbrot. En strax og hætt var að gefa lyfið, hurfu kláðinn og útbrot- in. Kona fékk óvirkt lyf; tíu mínútum síðar fékk hún maga- verki, niðurgang og bólgnar var- ir. Þessi einkenni komu alltaf, hvaða óvirkt lyf sem henni var gefið, og þau urðu hvorki verri né betri þótt hún fengi virkt: iyf- Þess hefði mátt vænta, að óvirk lyf hefðu helzt áhrif þeg- ar um minniháttar sjúkdóms- einkenni er að ræða, en tilraun- irnar leiddu í ljós, að áhrif þeirra eru því meiri sem sjúk- lingurinn er veikari, og verður það engan veginn skýrt sem sál- rænt fyrirbrigði eingöngu. Að minnsta kosti eru áhrifin á lík- amann jafngagnger og áhrif lyfja, sem í krafti kemískra eiginleika sinna grípa inn í hin margbrotnu efnaferli líkamans. Vafasamt er, að menn hafi áður gert sér ljóst, að læknis- dómur geti veriðfólginn í óvirk- um lyfjum. Læknum er að vísu ljóst, að auðvelt er að láta blekkjast af nýjum lyfjum. Æ ofan í æ hefur reynslan orðið sú, að lyf sem í upphafi vakti hrifningu lækna, verður smám saman gagnslítið eða gagns-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.