Úrval - 01.08.1956, Side 91
I íileí'ni þess að kosningar eru nýlega
afstaðnar, er fróðlegt að kynnast þ\í
hvernig Fornrómverjar ráku
kosningaáróður.
Grein úr „Wochenpost“,
eftir Ernst Mayerhofer.
EGAR Pompeji eyddist, í
ágúst árið 79 e. Kr. í Vesú-
víusgosi, stóð yfir hörð kosn-
ingabarátta í borginni. Líkt og
nú, var í þeirri baráttu beitt
öllum tiltækilegum áróðursvopn-
um, en þar sem hvorki þekkt-
ist prentun né nothæfur pappír,
dagblöð né auglýsingaspjöld,
notuðu menn múrveggi og hús-
gafla til þess að skrifa og teikna
á kosningaáróður sinn. Og þann-
ig eigum við hinum miklu nátt-
úruhamförum, sem grófu Pom-
peji í ösku, að þakka, að fjöl-
mörg kosningaávörp og hvatn-
ingarorð hafa varðveitzt og
Itomið fram í dagsljósið við upp-
gröft borgarinnar á undanförn-
um áratugum. Þau gefa okkur
ágæta mynd af því, hvernig
Rómverjar háðu kosningabar-
áttu sína. Það skorti ekki á
ástríður. Mörg þessara ávarpa,
sem flest eru skráð með hinni
litsterku Pompejirauðkrít og
sum jafnvel myndskreytt, koma
okkur, 1900 árum síðar, næsta
broslega fyrir sjónir. Það sem
við rekum fyrst augun í, er að
konur, sem útilokaðar voru frá
allri þátttöku í pólitísku lífi„
tóku eigi að síður mikinn þátt.
í kosningabaráttunni, einkum á
þann hátt að hvetja kjósendur
til að kjósa eiginmenn sína eða
aðra nákomna. Mörg kosninga-
ávörp á veggjum í Pompeji bera.
þessari viðleitni kvenfólksins
glöggt vitni.
Á einum vegg stendur með
stórum stöfum: „Agrippa hefur-
þvegið þetta hús með eigin
höndum, svo að á það megi
skrifa hvaða kostum eiginmað-
ur hennar er búinn."
Um fimmtíu ávörp hafa fund-
izt þar sem Asillina nokkur mæl-
ir fast með unnusta sínum við
kjósendur:
„Asillina biður kjósendur að
gefa unnusta sínum, Luciusi
Secundusi, mesta alvörumanni
í hópi ungra manna í Pompeji,
atkvæði sitt.“
„Asillina vonar, að allar vin-
konur hennar biðji menn sína
að kjósa Lucius Secundus."
„Kjósendur ættu ekki að
gleyma því að gefa unnusta
mínum Luciusi Secundusi at-
kvæði sitt.“