Úrval - 01.08.1956, Page 116
Geta menn bráðum orðið sólbrúnir
á einum degi ?
Sólbrunalyf.
Ur „The Wall Street Journal“,
eftir Ray J. Shrick.
Það hefur löngum verið gremju-
efni þeim sem- ljósir eru á hár og
hörund, að þeir verða að um-
gangast sólina af mikilli var-
kárni fyrri part sumars, ef þeir
vilja komast hjá þvi að skað-
brenna, og sumir geta jafnvel
aldrei fengið hinn eftirsótta hör-
undslit, sem talinn er bæði feg-
urðar- og hraustleikamerki. Nú
lítur út fyrir, að þetta áhyggju-
efni verði brátt úr sögunni, að
menn geti strax á fyrsta sól-
skinsdegi sumarleyfisins legið
lengi í sólbaði og orðið sólbrún-
ir í stað þess að eiga á hættu
að verða rauðir eins og karfi
eða jafnvel skaðbrenna —- með
því einu að gleipa „sólbruna-
pillu" skömmu áður en þeir
leggjast í sólbað.
Þessi áhrif hins nýja lyfs, sem
heitir á læknamáli 8-MethOxy-
Psoralen, skammstafað 8-MOP,
fundu þrír læknar við háskólann
i Oregon í Bandaríkjunum þegar
þeir voru að leita að lyfi er lækn-
að gæti húðsjúkdóm sem vitiligo
nefnist. Húðsjúkdómur þessi lýs-
ir sér í því, að húðin verður mis-
lit, ljósir flekkir koma hér og
þar. 8-MOP gaf nokkurn árang-
ur, en þó ekki að öllu leyti eins
og til var ætlast: Ljósu flekk-
imir dökknuðu — en aðrir hlutar
hörundsins dökknuðu einnig.
Lyfið hafði m. ö. o. þau áhrif,
að það örvaði myndun litarefnis
í húðinni. Læknunum hugkvæmd-
ist þá, að hér kynni að vera
fundið hið ákjósanlegasta lyf fyr-
ir þá sem ljósir eru á hörund og
viðkvæmir fyrir sól.
Á undanförnum þrem árum
hafa verið gerðar tilraunir á um
100 manns og hefur fengizt mjög
athyglisverður árangur: menn
sem „aldrei" höfðu getað orðið
brúnir og ekki þoldu sól, gátu
legið góða stund í sól án þess
að brenna, eftir að þeir höfðu tek-
ið 8-MOP og hörund þeirra varð
gullbrúnt. I sumar eru ráðgerðar
tilraunir á 2000 manns og styrk-
ir heilbrigðisstofnun ríkisins þær
tilraunir.
Venjulegar sólarolíur verka á
þann hátt, að þær vama hinum
sterku útfjólubláu geislum sólar-
Framhald á 2. kápusíöu.
STEINDÓRSPRENT H.f.