Læknaneminn - 01.10.1993, Side 8
Tafla 1. Samband breytinga sýklalyfjaskammts vid skerta nýrnastarfsemi eða nýrnabilun.
Minnkun lyfjaskammts Flokkar sýklalyfja
Engin (útskilnaður Kloxaciilín, díkloxacillín, ceftríaxón, erýtrómýcín, klindamýcín,klóramfaiikól,
óhdður nýrnastarji) doxýcýklín, rifampín, metrónídazól, amphótericín B.
Eingöngu efveruleg Penicillín, amoxicillín, ampidllín, cefalexín, cefamandól, cefúroxím, cefótaxím,
nýrnabilun (GFR<30ml/klst) ceftazidím, piperacillín, trímetóprím/súlfametoxazól, naldixín sýra,
cíprófloxacín, ísóníazíð, etambútól.
Strax við skert nýrnastarf Tícarciliín, cefazólín, ímípenem, vankómýcín, gentamícín, tobramýcín,
(GFR<70 ml/klst) netilmícín, amikacín, flúcýtósín.
Skert nýrnastarf Tetracýklín (nema doxýcýklín), nítrófúrantóín, methenamín, langvirk súlfónamíð
frábending gegn notkun
VAL SÝKLALYFJA
Val sýklalyfs eða lyfja í hverju tilviki fer að
sjálfsögðu fyrst og fremst eftir því hver sjúkdómurinn
er og hvað er vitað um líklegar orsakir. Taka þtuf tillit
til þekkts næmis sýkla á hverjum stað. V;J lyfja ræðst
líka af ýmsum þáttum er tengjast hýslinum, eða
sjúklingnum, s.s. sögu um ofnæmi, aldur, starfsemi
nýma og lifrar. I sumum tilvikum þarf að breyta
skammti sýklalyfja við truflun á starfi nýrna og lifrar
(Tafla 1, Tafla 2). Mörg lyf fara yfir fylgju og skiljast
út í brjóstamjólk og þarf því að gæta varúðar við
notkun margra þeirra til handa þunguðum konum og
þeim sem hafa bam á brjósti (Tafla 3).
Mestu máli skiptir þó fyrir farsæla notkun
sýklalyfja og æskileg afdrif sjúklingsins að taka sýni
til GramliUinar og ræktana áður en meðferð er hafin.
Tafla 2. Við notkun eftirtalinna sýklalyfja er
skammtabreytingar þörf við alvarlega truflun á
lifrarstarfi.
Aztreónam Isóníazíð
Klóramfenikól Metrónídazól
Klindamýcín Ril'ampín
Erýtrómýcín
Oftast er hægt að einfalda meðferð mjög þegar
upplýsingar liggja fyrir um orsök sjúkdómsins en því
miður ferst sýnataka alltof oft fyrir.
SKÖMMTUN SÝKLALYFJA
Undanfarin 50 ár hafa meginframfarir í notkun
sýklalyfja verið tilbúningur nýrra og sífellt breiðvirkari
lyfja. Eins og áður sagði hefur ekki tckist að ráða við
tilurð ónæmis á þann hátt og ef fer sem horfir er
mögulegt að sýklalyfjaöld líði undir lok imian tíðar
nema unnt sé að stemma stigu við tilurð ónæmis.
Tafla 3. Notkun sýklalyfja á meðgöngu.
Líklega örugg Varúöar þörf Notist ekki
Penicillínsambönd Imípenem Cíprófloxacín
Cefalóspórín- Vankómýcín Nalidixín sýra
sambönd Klindamýcín Tetracýklín-
Aztreónam Klóramfeníkól sambönd
Erýtrórnýcín Amínóglýcósíð
(nema estólat) Metrónídazól
Methenamín Nítrófúrantóín Trímetóprím Súlfónamíð Dapsón
6
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.