Læknaneminn - 01.10.1993, Side 33

Læknaneminn - 01.10.1993, Side 33
LÆKNISLISTIN, HEIMSPEKIN OG SJÁLFSMORÐIÐ Jóhann Björnsson EINHVERNTIMAN Á staifsævi sinni má sérhver læknir eiga von á því að vera beðinn um aðstoð vegna sjálfsvígs. Hér á ég ekki við bón einstaklings sem leitar aðstoðar til þess að vinna bug á óþægilegum sjálfsvígshugsunum heldur þvert á móti bón um aðstoð til þess að mega takast að svipta sig lífi á öruggann og sem sársukaminnstan máta. Bandarísku samtökin The Hemlock Society sem stofnuð voru árið 1980 af blaðamanninum Derek Humphrey eru þekkt fyrir baráttu sína fyrir rétti einstaklingsins til dauðans. I þessari baráttu sinni leggja þau áherslu á rétt lækna til þess að aðstoða þá sem svipta vilja sig lífi, svo og lögleiðingu þessarar læknisaðstoðar þar sem hún er víða ólögleg. Meginástæða þess að vilja fá lækna til aðstoðar er til þess að koma í veg fyrir mistök, óþarfa þjáningu og slys sem oft fylgja sjálfsvígstilraunum. Samtök þessi sem telja um 50.000 félagsmenn hafa gefið út fjölda bóka tengdu hugðarefnum sínum og er líklega þekktust bókin Final Exit, sem út kom árið 1991 og varð metsölubók í Bandaríkjunum eftir að hafa fengið mikla umfjöllun og orðið valdur að deilum. Bók þessi hefur að geyma ýmsar leiðbeiningar og ráð til þeirra sem svipta vilja sig lífi og eru til dæmis veittar upplýsingar um sjálfsvígsaðferðir og lagt mat á gæði þeirra með tilliti til árangurs, en einnig er lögð áhersla á að tekið sé tillit til þeirra sem koma að hinum látna, svo að sýn þeirra veki sem minnstaim óhug. Höfundur bókarinnar Derek Humphrey sagði í viðtali eftir að bókin kom út (í Time 19. águst 1991) að hluti af góðri læknislist væri að aðstoða fólk við að komast burt frá lífinu rétt eins og að komast til lífsins. Höfimdur stundar M.A. nám í heimspeki við Kaþólska Háskólann í Leuven í Belgíu (Katholieke Universiteit). Þar að auki var haft eftir honum í sama viðtali: “Fólk vill geta haft einhverja stjórn á andláti sínu. Bók mín er nokkurskonar trygging, huggari í bókahillunni sem sýnir fólki að það er þess umkomið að yfirgefa þetta lífeigi það við óbœrilega þjáningu að stríða. ”(1) Tilvist samtaka sem þessara og það sjónarmið ýmissa einstaklinga að hver og einn skuli ráða endalokum lífs síns vekur upp áleitnar spumingar sem æskilegt er að sérhver læknir geti gefið vel mótuð og góð svör við, hvert svo sem hans eigið sjónarmið er. Spumingar þessar koma inná ýmis vandamál sem óumflýjanlega fylgja læknisstarfinu og varða skynsemi sjálfsvíga og gildi lífs og dauða; er sjálfsvíg sjúkdómur eða frjálst val einstaklingsins, ber að hindra þann sem hyggst svipta sig lífi, vill einhver deyja dauðans vegna og svona mætti áfram telja. Þessar spumingar og aðrar viðlíka sem fylgja læknislistinni gera það að verkum að hún er að einum þræði heimspekilegt fag og læknar ættu því ekki að vera einungis tæknimenn sem lappa upp á sjúka líkama heldur einnig heimspekingar sem kunna skil á vandamálum þeim sem fylgir því að vera viti borin vera gædd löngunum og tilfinningum. AF TVENNSLAGS SJÁLFSVÍGUM Hugmyndin um að sjálfsvíg séu í grund- vallaratriðum tvennskonar; þ.e. annarsvegar skynsamlegt, vel ígrundað og viljað sjálfsvíg (rational) og hinsvegar óskynsamlegt og þrungið tilfinningahita augnabliksins (emotional, irrational) em síður en svo ný af nálinni. Stóumenn til foma trúðu á tilvist skynsamlegra sjálfsvíga og ef svo færi að menn gætu LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg. 31

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.