Læknaneminn - 01.10.1993, Page 63

Læknaneminn - 01.10.1993, Page 63
INNGANGUR GLÚTENÓÞOL, “Coeliac spme”, “Non-tropical sprue”, “Gluten enteropatliy” og “Celiac disease” er krónískur sjúkdómur í görnum orsakaður af óþoli fyrir glúteini. Helstu skilmerki eru: 1. Klínísk einkenni og/eða efnafrœðileg merki um vanfrásog. Vefjafrœðilega sönnuð visnum (atrophy) á þarmatotum. 2. Klínísk og vefjafræðileg bötnun eftir meðferð með glúteinfríu fœði. 3. Klínísk og/eða vefjafrœðileg versnun, ef sjúklingur neytir glúteins aftur. Fyrsta lýsing á glútenóþoli er semiilega frá 2. öld eftir Krist. Þessi lýsing mun hafa verið skrifuð af Aretaeus frá Kappadókíu og síðan þýdd af Francis Adams og gefin út 1856. Um 1700 árum síðar í október 1887, beindist athygli manna aftur að glútenóþoli, þegar doktor Samuel Jones lýsti sjúkdómnum í börnum. Eftir seinni heimsstyrjöldiim lýsti síðan hollenskur læknir, Dicke, glúteni sem efiú sem valdi sjúkdómum. Fyrstu smáginús vefjasýnatökuniíir voru gerðar 1956 bæði í Argentínu og Englandi nteð Crosby Capsule 1957 (Mynd 1). Vefjasýiú í gegnum scopiu (Mynd 2) urðu síðan vinsæl á 8. áratugnum. Fyrsta lýsing af glútenóþoli í fullorðnum á Islandi er síðan 1985. Að undanfömu hafa verið gerðar rannsóknir varðandi þátt erfða, ónæmis og umhverfis í meinafræði sjúkdómsins. Fað hefur orðið vaxandi skilningur á breytilegri sjúkdómsmynd og langtímahorfum sjúkdómsins. Höfundur er sérfræðingur í lyflækningum og meltingarfœrasjúkdómum og starfar á lyflœkninga- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg. Það rná lýsa sjúkdómnum sem krónískum sjúkdóm í gömum, tilkominn vegna óþols fyrir gliadinum, sem er hluti af glúteini, í hveiti, sem einkennist af flatri slímhúð í smágimi, (subtotal eða total villous atrophy, Myndir 3 og 4) og lagast klínískt og vefjafræðilega með því að borða ekki glúten í fæðu (Mynd 5). Sjúkdómurinn er að mestu bundinn við hvíta kynstofninn. Hann þekktist vart eða ekki í Mynd 1. Crosby capsule. 57

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.