Læknaneminn - 01.10.1993, Page 72

Læknaneminn - 01.10.1993, Page 72
þjónustugjöldin er hinsvegar óneitanlega sá að með þeim kemur þetta virka neytendaeftirlit. Fólk hefur eftirlit með því að ekki sé verið að okra á því og að það fái góða þjónustu. Ég held hinsvegar að við séum komin að endastöð hvað varðar upphæð þjónustugjalda sem hlutdeildar af útgjöldum í heilbrigðiskerfinu, þó ég vilji gjarnan hafa þau áfram til staðar sem tæki í þessu eftirlitshlutverki. Ég er á því að okkur miði í rétta átt í þessu sambandi, ekki síst nú þegar við erum við erfiðar aðstæður í tilraun til þess að spara og hagræða. Ég held að tíminn vinni með okkur í þessa veru. Það er eitt sem er grundvallaratriði í þessu öllu saman að heilbrigðiskerfið er ekki til orðið fyrir það fólk sem við það vinnur, með fullri virðingu fyrir því ágæta fólki, heldur fyrir hina sem þjónustuna nota. Nú hefur verid sparnaðarherferð í gangi í mörg ár, er hœgt að spara meira? Já, það held ég. Ég held að það sé alltaf hægt að spara betur og meira. Þetta er verkefni sem á ævinlega að hafa í heiðri, en er ekki tímabundið. Er það hœgt án þess að draga úr þjónustunni? Ég svara því líka játandi. Vissulega getur þetta í ákveðnum tilvikum þýtt breytingar á þjónustu, að biðtími aukist og að þjónustan birtist með öðrum hætti. Ég bend nú á tilfelli áðan þar sem vissulega var verið að taka meira út úr kerfinu en efni standa til og ég held að það séu fleiri slík dæmi. Ég er með í mínum tillögum til fjárlaga margskonar spamaðarhugmyndir sem ég hygg að skerði ekki þjónustu og hækki ekki útgjöld, heldur séu fyrst og fremst að taka á kerfinu. Ég nefni í því sambandi af því ég er nú að ræða við læknanema að ég hef beðið ríkisendurskoðun að gera úttekt á því hvaðan læknum koma laun. Hvar eru þeir að vinna, því það eru jú fjölmörg dæmi um það að þeir séu að vinna á fleiri en einni sjúkrastofnun á sama tíma, séu svo með einkapraxis og fái laun í gegnum tryggingastofnun. Ég held að það sé mjög hollt fyrir alla aðila að fá úr því skorið hvemig þetta er samansett Þetta er auðvitað ákveðið þjónustukerfi og ákveðið laimakerfi sem menn hafa sett upp og ég er klár á því að ef það verður þannig að læknar séu starfsmenn sjúkrastofnaima og sinni svo göngudeildarþjónustu þar, en aðrir sérfræðingar vinni úti í bæ, þá verður að endurmeta launakjör lækna í þessu samhengi. Þetta vil ég sjá breytast. Það gerist ekki í einum vettvangi, en það á að breytast. Nú hafa heyrst af því fréttir að undanförnu að þú hyggist koma á heilsukortum, sem fólki sé í sjálfsvald sett hvort það greiðir. Telur þú að þetta muni veita öllum jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu? Já ég tel það. Þetta verður einfaldlega þannig að allir Islendingar 16 ára og eldri fá sent heilsukort, sem getur heitið sjúkrasamlagskírteini eða hvað annað sem menn vilja nefna það. Kortið kostar 2000 krónur og ef viðkomandi endursendir ekki þetta kort innan hálfs mánaðar, þá er hann sjúkratryggður. Síðan fær hami sína mkkun eins og gengur og gerist með hverja aðra innheimtu og hann er sjúkratryggður hvort sem hann er búinn að borga þetta eða ekki, ef hann endursendir ekki kortið. Honum verður gert að borga þetta með eðlilegum innheimtuaðferðum. Mín trú er sú að þegar fólk sér í hendi sér hvað það ber úr býtum við að halda kortinu fyrir 2000 krónumar og hvað það þarf að greiða ef það gerir það ekki, að skynsemi og dómgreind íslendinga sé með þeim hætti að það verði 99,9% þjóðarinnar sem auðvitað haldi kortinu og greiði það við innheimtu. Hinir sem ekki gera það og endursenda kortið em með því aðeins að segja það að þeir vilji gefa einhverjum öðrum þá upphæð sem þeir hafa þegar greitt í skatta. Sannleikurinn er sá að af þeim 47 milljörðum sem heilbrigðis- og tryggingakerfið kostar, þá em um 40 milljarðar sem greiðast með beinum sköttum. Heilsukortið er 400 milljómr af þessum 40 milljörðum, eða örlítið brot og þetta þýðir það að þeir sem ekki vilja greiða kortið og endursenda það em að gefa hinum skattana srna. Ég þekki engan mann sein mundi gera það. Verða ekki innheimt önnur gjöld affólki? Það verður allt annað óbreytt í þessu sambandi. Pað er í gildi reglugerð sem felur það í sér að sjúklingar bera umtalsverðan kostnað qfsmáion aðgerðum. Maður hefur heyrt háar tölur, liðþófaaðgerðir á 15-20 þúsund fyrir utan blóðprufur og endurkomu og slíkt, aðgerðir vegna forstigsbreytinga á leghálsi 7-8 þúsund. Hver er þín skoðun á þessu? Þetta em nefnd ferliverk og reglugerðin er frá s.l. hausti. Umfang þessarra ferliverka er öllu meira en ég hafði gert mér grein fyrir. Viðmiðunin er sú að allar aðgerðir sem hægt er að gera utan sjúkrahúsa teljast til ferliverka. Með bættri tækni hefur þeim aðgerðum fjölgað. Ég er eimnitt að fara yfir þessi mál þessa dagana og reyna að glöggva og skilgreina þessa 66 LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.