Læknaneminn - 01.10.1994, Page 25

Læknaneminn - 01.10.1994, Page 25
BLOÐRUSJUKDOMAR f HÚÐ YFIRLIT YFIR NOKKRA HELSTU BLÖÐRUSJÚKDÓMA í HÚÐ Jón Hjaltalín Olafsson INNGANGUR Blaðraíhúðervökvasöfnuníeðaréttundirhúðþekju (epidermis). Ýmsum algengum húðsjúkdómum geta fylgt vökvafylltar blöðrur. Dærni um slíkt er brátt snertiexem, áblástur (herpes simplex), ristill (herpes zoster) og blöðru-kossageit (impetigo bullosa) af völdum klasabakteria (staphylococcar). Blöðrurgeta einnig komið fram eftir svæsin skordýrabit eða eftir bruna, kulda og núning (nýir skór). Hér verður aðallega fjallað um aðra blöðrusj úkdóma í húð sem hafa ónæmisbakgrunn og eru fremur sjaldgæfir. Flokkun þessarra sjúkdóma byggir á útliti útbrota og á munstri því sem sést í ónæmisflúrskímu (immunofluorescence). Tilaðskiljaþessalangvarandi blöðrusjúkdóma í húð og slímhúð er nauðsynlegt að skoða örgerðarlíffærafræði (ultrastructural anatomy) þess hluta húðarinnar sem um ræðir. Millifrumubil húðþekju Húðþekjufrumurbindastsamanmeðmillifrumuefni og með staðbundnu þéttu formlausu efni sem nefnist frumutengi (desmosome). Þetta eru þær brýr milli frumna sem sjást í ljóssmásjá. Samsetning frumutengja hefur nú verið ákvörðuð og hið kolefnaríka millifrumuefni hefur nú einnig verið greint. Inni í húðþekjufrumum er þráðlaga form, þanþráðla(tonofilament)enmargarþanþráðlursaman kallast þekjufrumutengi (tonofibrils). Þekju- frumutengin í húðþekjufrumum liggja þétt að Höfundur er sérfrœðingur í húð- og kyn- sjúkdómafrœðum og dósent við Háskóla Islands. frumutengjunum en liggja þó ekki út fyrir frumuvegginn. Mót húðþekju og leðurhúðar (dermis) Bil húðþekjufrumna og grunnhimnu (basement membrane) leðurhúðar er afar mikilvægt. Þetta er veikasti hlekkurinn í húðinni og sá staður sem líklegasturertil að rofnaog kljúfa húðina í fjölmörgum sjúkdómum. Mikilvægasta fruman á mótum grunnhimnu og leðurhúðar er grunn-hyrnisfruman (basal keratinocyte). Frumuhimna (plasma mem- brane) hyrnisfrumunnar myndar efsta hluta grunnhimnunnar. Hún hefur litla þétta nabba, hálffrumutengi (hemidesmosome). Undirfrumuhimnu hyrnisfrumunnar er skýrþynnan (lamina lucida) en húnligguryfirþéttþynnu(laminadensa). Kollagenaf gerð IV er aðal byggingarprótín grunnhimnu og liggur það að þéttþynnu. Tengitrefjar (anchoring fibrils) liggja að þéttþynnu og mynda net sent tengist leður- húð. Kollagen af gerð VII er megin uppistaða tengitrefja. Það myndar víðtækt net en í það setjasl kollagenþræðir af gerð I og III. Þetta net tengir þéttþynnu við uppistöðuvefinn (stroma). Tegund blöðru fer eftir því hvar blaðran myndast. Blöðrur geta myndast á eftirfarandi stöðum: 1) undir hornlagi húðþekju (stratum corneum, subcorneal). 2) í húðþekju(intraepidermal) 3) undir húðþekju (subepidermal). Hér á eftir verður fjallað um þá blöðrusjúkdóma sem þekktastireru, þ.e.pemphigus, pemphigoid, pem- phigoid í slímhúð og dermatitis herpetiformis. LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg. 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.