Læknaneminn - 01.10.1994, Side 37
HAÞRY SHMEÐFERÐ
MEÐ SÚREFNI
S • •
Agúst Orn Sverrisson
INNGANGUR
í grein þessari er fjallað um háþrýstimeðferð með
súrefni og gerð grein fyrirhelstu ábendingum. Fjallað
er stuttlega um sögu háþrýstimeðferðar og þau
eðlisfræðilegu lögmál sem liggja að baki henni. Auk
þess verður fjallað um algengustu aukaverkanir og
hvað skuli sérstaklega varast við meðferð. Greininni
er aðeins ætlað að vera stutt kynning á háþrýsti-
súrefnislækningum og finna má ítarlegri upplýsingar
um meðferðina í ritum sem talin eru í heimildaskrá.
SKILGREINING
I háþrýstimeðferð andar sjúklingurinn að sér 100%
súrefni við þrýsting sem nemur meira en einni
loftþyngd. Sjúklingurinn verður að anda að sér
súrefninu viðhinnauknaþrýsting.þrýstingsaukningin
ein nægir ekki til að auka hlutþrýsting súrefnis í blóði.
Varast skyldi að blanda háþrýstimeðferð þessari
saman við aðrar aðferðir sem notaðar hafa verið með
súrefni, einkum að láta hreint súrefni leika um opin
sár eða loka háþrýstihólk með súrefni um særðan
handlegg eða fótlegg. Aðferðir þessar byggja ekki á
sama lífeðlisfræðilega lögmáli og eiginleg háþrýsti-
súrefnismeðferð og ekki hefur verið unnt að sýna
óyggjandi fram á gagnsemi þeirra með klínískum
rannsóknum.
ÁGRIP AF SÖGU
Fyrstu eiginlegu háþrýstiklefarnir voru byggðir
snemma á 18. öld í Frakklandiog voru þeir notaðir til
að meðhöndla ýmsa kvillaen sjúklingarnir önduðu að
Höfundur er deildarlœknir á handlœknisdeild
Borgarspítala.
sér andrúmslofti. Er Ieið á öldina þróaðist
háþrýstitækni í tengslum við þróun köfunar vegna
mannvirkjagerðar. Á seinni hluta 19. aldar varð
mönnum ljóst að ofgnótt súrefnis gæti haft
eiturverkanir í för með sér. I upphafi skorti oft
vísindaleg rök fyrir meðferð og ýmsar tilraunir voru
gerðar. Árið 1928 reisti bandaríski læknirinn
Cunninghamfimmhæðaháþrýstikúlu íCleveland, en
sjúklingarþarönduðuaðsérandrúmslofti. Starfsemin
var stöðvuð árið 1937 og kúlan rifin í brotajám. Um
svipað leyti hófst markviss háþrýstimeðferð með
súrefni við meðferð á kafaraveiki. Fyrir daga hjarta-
og lungnavélarinnar voru hjartaaðgerðir sums staðar
gerðar við háþrýsting súrefnis til að auka flutning
þess í sjúkling. Þetta lagðist af skömmu eftir 1960.
Mikilgróskavaríháþrýstilækningumáárunum 1960-
1970 og voru miklar rannsóknir stundaðar.
Ábendingum fjölgaði hratt í fyrstu en hin síðari ár
hefur fjöldi þeirra að mestu staðið í stað, a.m.k. í
Bandaríkjunum. Samtök háþrýstilækna þar gefa
reglulega úl endurskoðaða handbók þar sem gerð er
grein fyrir viðurkenndum ábendingum, viðmiðunum
við ákvörðun lengdar meðferðar og helstu
aukaverkunum.
í marsmánuði 1993 kom fyrsti háþrýstiklefinn til
íslands sem notaður hefur verið til almennra lækninga,
en fyrir var klefi í eigu Landhelgisgæslunnar sem
eingöngu var notaður við meðferð á kafaraveiki.
Kom hinn nýi klefi til íslands fyrir atbeinaræðismanns
Islendinga á Sikiley, Calcedonio Gonsalez, en hann
hefur sérmenntun í súrefnismeðferð auk þess að hafa
starfað sem háls-, nef- og eyrnalæknir. Veittu ítölsk
yfirvöld styrk til verksins og kostuðu alla starfsemi
allt til áramóta 1993-1994 en eftir þann tíma hefur
kostnaðinum verið deilt til helminga milli Islands og
Italíu og mun svo verða allt til ársloka 1996 er
samstarfsverkefni þessu lýkur. Ijúní 1994 vartekinn
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
35