Læknaneminn - 01.10.1994, Side 44

Læknaneminn - 01.10.1994, Side 44
AUKAVERKANIR háþrýstisúrefnismeðferðar 1. Averki á hljóðhimnu og miðeyra. 2. Sinus squeeze. 3. Vökvasöfnun í miðeyra. 4. Innilokunarkennd. 5. Tímabundin nærsýni. 6 Krampi. 7. Dofi í höndum og fóturn. 8. Syfja og slen. Tafla 3. Helstu aukaverkanir háþrýstimeðferðar. reynst nauðsynlegt að gera hlé á meðferðinni meðan bólgan gengur yfir og slímhúðin jafnar sig. Súrefni í mjög miklu magni getur haft eituráhrif á taugavef sem lýsir sér í krömpum. Mjög misjafrft er hversu næmt fólk er við eiturverkun þessari en þættir sem lækkakrampaþröskuldalmenntaukaeinniglíkur á súrefniskrömpum. Máþar nefna sótthita, líkamlega áreynslu, geðshræringu og upphleðslu af koltvísýringi. Súrefniskrampar gera oftast boð á undan sér með andþyngslum, suðu fyrir eyrum, ógleði og ótta- tilfinningu. Krampinn er meðhöndlaður á sama hátt og aðrir krampar og súrefnisgjöf er hætt samstundis. Ekki hefur verið sýnt fram á að krampi af þessum toga sé til langs tíma skaðlegri heilsu sjúklingsins en krampar af öðrunr toga, né að þeir valdi varanlegri skemmd í miðtaugakerfi. Tímabundin gjöf súrefnis við yfirþrýsting veldur ekki óafturkræfum lungnaskaða líkt og verður þegar sjúklingum í öndunarvélum er gefið hátt hlutfall súrefnis yfir lengri tíma. Loflbrjóst getur myndast meðan á súrefnismeðferð stendur, ýmist tengt meðferðinni eða ekki. Sé dregið úr þrýstingi í meðferðarklefanum eykst rúmmál loftsins í brjóstholinu í réttu hlutfalli og þrýstir að aðlægum líffærum. Með þessu móti getur rúmmál loftsins utan lunga tvö- eða þrefaldast og stefnt lífi sjúklingsins í hættu. Því er nauðsynlegt að greina þetta strax og ekki má taka þrýsting af klefa fyrr en þessu lofti hefur verið hleypt út með brjóstholsskera eða nálarástungu. Lýst hefur verið tímabundinni breytingu á sjón standi súrefnismeðferð lengi. Virðist sem í stöku tilfella geti meðferðin framkallað væga nærsýni sem gengur til baka eftir að meðferð er hætt. Einnig hefur verið lýst aukinni tilhneigingu til vaglmyndunar hjá þeirn sem hafa vagl (cataract) fyrir en um þetta eru menn ekki á eitt sáttir. Algeng en hættulaus aukaverkun þessarar meðferðar er syfja og þreytutilfinning eftir meðferð sem staðið getur í tvær til þrjár klukkustundir eflir að meðferð er lokið. Þreytutilfinning þessi hverfur jafnan eða nrinnkar nrikið eftir urn tíu meðferðir. NIÐURLAG Þrátt fyrir fyrrgrcinda upptalningu má í raun segja að súrefnismeðferð sé hættulítil og geti gagnast í nreðferð ýmissa kvilla þar sem önnur ráð hafa brugðist eða aðeins komið að takmörkuðu gagni. Erþví mikilvægtað íslenskirlæknargeri sér sæmilega grein fyrir möguleikum þessarar meðferðar svo að hún megi gagnast sem flestum. Jafnframt ber að varast að vekja falsvonir hjá sjúklingum sem gjarnan vilja fylgja nýjungum á sviði lækninga og gera óraunhæfar kröfur til tækni sem hefur sínar takmarkanir og annmarka líkt og önnur úrræði sem beitt er í nútíma læknisfræði. Með aukinni kynningu og reynslu af þessari meðferð mun hún festa sig í sessi er fram líða stundir. HEIMILDIR Hyperbaric oxygen therapy: a committee report (1992). Undersea and Hyperbaric Medical Society, Bethesda, Maryland. Jain KK: Textbook of hyperbaric medicine. Toronto: Hogrefe and Huber publishers, 1990. Kindwall EP: Hyperbaric medicine procedures. Milwaukee: St. Lukes Medical Center, 1988. Davis JC, Hunt TK, ed.: Problem wounds, the role of oxygen. New York: Elsevier, 1988. Myers RAM, Snyder SK, Emhoff TA: Subacute sequelae of carbon monoxide poisoning. Ann Emerg Med 1985;14:1163-1167. Green RD, Leitch DR: Twenty years of treating decompression sickness. Aviat Space Environ Med 1987; 58:362-366. 40 LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.