Læknaneminn - 01.10.1994, Side 52
registration ) líkt og Bretar og þegnar EB-landa. Að
auki þurfa Islendingar ekki lengur atvinnuleyfi til að
ráða sig í námsstöður eða önnur störf á Bretlandseyj um.
Makar geta því ráðið sig í vinnu án þess að sækja um
atvinnuleyfi.
Einnig er rétt að nefna að hið rnikla vinnuálag sem
hefur loðað við námsstöður í Bretlandi fer minnkandi.
Frá og með 1. apríl 1993 tók giidi sú regla að
meðalviðvera læknis í námsstöðu megi ekki vera
lengri en 72 klst. á viku. Enn hafa þó ekki öll
sjúkrahús náð að uppfylla þessi viðmið, en þróunin
verður vart stöðvuð. Ljóst er þó að áframhaldandi
stytting við-veru unglækna mun krefjast endur-
skipulagningarheilbrigðiskerfisins (National Health
Service-NHS) og hafa í för með sér aukið álag á
sérfræðinga. Afkoma breskra lækna í námsstöðum er
viðunandi og hefur batnað talsvert á síðustu áratugum.
Menn eiga því að geta framfleytt fjölskyldum sínum
skammlaust í flestum tilvikum.
HVERNIG BERA MENN SIG AÐ?
FYRSTA SKREFIÐ
Þegar áhugi á framhaldsnámi á Bretlandseyjum
hefur vaknað er rétt að fræðast um nám og lífskjör þar
með þ ví að spj alla við einhverja þeiira breskmenntuðu
lækna sem eru starfandi hér á landi. Rétt er og að lesa
vandlega það fræðsluefni sem til er í möppu FÚL um
framhaldsnám. Gera skal ráð fyrir að u.þ.b. eitt árgeti
liðið frá því bréfaskr'iftir hefjast þar til framhaldsnám
getur hafist. Sé sérfræðingur nýkominn heim úr námi
í þeirri grein sem vekur áhuga er rétt að leita sér
upplýsinga hjá honum, ellegar skrifa mönnum í
framhaldsnámi í greininni ytra, ef einhverjir eru.
Námsstöður fyrir lækna er lokið hafa kandídatsári
(Senior House Officer , Registrar) eru auglýstar í
fylgiriti British Medical Journal. Rétt er þó að hafa
varann á og hlaupa ekki í auglýstar stöður nema tryggt
sé að þær séu hluti af skipulögðu framhaldsnámi
(rotation).
Þar sem breskir læknar þekkja því miður almennt
ekki hið góða orðspor sem víða fer af íslenskum
læknum, er rétt að kanna hvort persónuleg tengsl hafi
skapast milli íslenskra lækna og yfirmanna breskra
háskóladeilda. Skynsamlegt er að senda með
fyrirspurnum um framhaldsnám (til dæmis varðandi
auglýstar stöður og möguleika á stöðu eða viðtali
vegna stöðu) yfirlit ummenntun, starfsferil, félagsstörf
ogritsmíðar(curriculum vitae-c.v.)(4). Góðmeðmæli
byggð á persónulegum tengslum og rannsóknarstörf
vega líklega þy ngst þegar um stöður á háskóladeildum
er að ræða. Rétt er að senda einnig bréf frá
meðmælanda ef persónulegum tengslum hans og
hlutaðeigandi yfirmanns er til að dreifa, ellegar geta
að minnsta kosti tveggja manna sem hægt væri að
hafa samband við bréfleiðis (póstbréf eða símbréf) og
væru reiðubúnir til að gefa meðmæli. Rétt er að gera
ráð fyrir að þurfa að mæta í viðtal ytra vegna
stöðuumsóknarnema þeim mun betri tengsl séu milli
íslenskra samstarfsmanna og hlutaðeigandi deildar.
NÆSTA SKREF
Þegar ákvörðun hefur verið tekin um framhalds-
nám á Bretlandi eða að fenginni námsstöðu með
góðum fyrirvara (lágmark þá fjórir til sex mánuðir) er
rétt að skrifa til General Medical Council (GMC-sjá
heimilisfang EES-deildar í viðauka) og óska eftir
eyðublaði vegnaskráningar(applicationformforfull
registration in accordance with the EEA-Agreement
and Directive 93/16/EEC). Allt að mánuður getur
liðið frá því slíkt bréf er sent þar til gögnin berast til
baka.
KRÖFUR
Þær kröfur sem GMC gerir til ,,full registration"
eru eftirfarandi:
1) Greiðsla skráningargjalds með ávísun (135 pund
árið 1994).
2) Fylla út umsóknareyðublað FR7 (fylgirgögnum
frá GMC).
3) Fylla út upplýsingaeyðublað þar sem annars
vegar er spurt um atriði eins og nafn, kyn, fæðingardag
og þjóðerni, hins vegar um starfsreynslu síðustu
tveggja ára.
4) Senda þarf vegabréf til GMC til að sanna íslenskt
þjóðerni. Aðrar sannanir eru ekki teknar gildar.
Senda það í ábyrgð og er það sent á sama hátt til baka.
Fari svo ólíklega að það týnist er hægt að fá nýtt hjá
lögreglustjóraembættinu (kostar 4000 kr).
5) Senda þarf frumrit (ekki vottað ljósrit) íslensks
prófskírteinis frá HI (Cand med et chir skjalið) og
vottaða þýðingu þess frá skrifstofu læknadeildar.
6) Fá staðfestingu í Heilbrigðisráðuneyti á að
kandídatsári hafi verið lokið með fullnægjandi hætti
46
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.