Læknaneminn - 01.10.1994, Side 58

Læknaneminn - 01.10.1994, Side 58
ASTMI I NÝJUNGAR UM ASTMA - MEINAFRÆÐI Unnur Steina Björnsdóttir Astmi einkennist af flóknu samspili frumna og boðefna sem leiðir til bólgu, bjúgs, slímmyndunar og þrengsla í öndunarvegi. Bólgubreytingarnar valda berkjuteppu og auðreitni (hyperresponsiveness) í öndunarvegi. Hér verður fjallað um meinafræði astma. í næsta hefti (l.tbl. 95) verður þessi þekking síðan nýtt til þess að meta hvaða meðferð sé best fyrir astmasjúklinga. Bólgubreytingar í öndunarvegi Helstu einkenni astma eru: 1. Breytileg mæði og öndunarteppa (með eða án meðferðar). 2. Bólgubreytingar í öndunarvegi. 3. Auðreitni við ýmsu áreiti, t.d. kulda, áreynslu og tóbaksreyk. Fyrir nokkrum árurn var talið að berkjuteppa hjá astmasjúklingum stafaði fyrst og fremst af samdrætti sléttra vöðva í öndunarvegi. Nú hefur komið í ljós að ónæmiskerfið gegnir mun miklivægara hlutverki. Hér er t.d. átt við bólgufrumur, boðefni og sérhæft taugakerfi í slímhúð öndunarvegar (Mynd 3). Bólgusvörun í öndunarvegi astmasjúklinga líkist öðrum bólgusjúkdómum hvað bólgufrumuíferð og vefjabreytingar varðar. Hér má nefna iktsýki og aðra bandvefssjúkdóma. Því hafa svipuð lyf verið notuð við astma og fyrrgreinda sjúkdóma, svo sem bólguhemjandi lyf (sterar)og frumuhemjandi lyf ( t.d. methotrexate, auronofin (gull) og cyclosporin A). Síðastnefndu lyfin eru aðeins notuð við meðferð á sjúklingum með slæman astma og þá oftast sem hluti af tilraunameðferð. Höfundur er sérfrœðingur í lyflækningum, ofnœmissjúkdómum og ónœmisfrœði. Ýmsar frumur valda og viðhalda bólgu í öndunarvegi. Þær mikilvægustu eru mastfrumur, eosinófílar, neutrófílar, átfrumur (macrophagar) og eitilfrumur (lymfócytar). Upphafsáreiti, t.d. návist sjúklings með kattarofnæmi við kött, hlaup úti í miklum kulda o.s.frv., ræsir mastfrumur, átfrumur og þekjufrumur. Þessar frumur losa þá ákveðin frumuboðefni (cytokin), sem aftur kalla á og ræsa aðrar frumur, t.d. neutrófíla, eosinofíla, mónócyta og lymfócyta. Samspil þessara frumna er lykilatriði í síðara bólgusvari. Komið hefur í ljós beint samband milli fjölda eosínofíla og T-frumna í blóðrás og öndunarvegi og hversu slæmur astminn er. Alleiðingar bólgusvars íöndunarvegi (Myndl)eru m.a. þessar: 1. Yfirborðsþekja berkjunnar flagnar og eyðilegst. 2. Vöðvatónus íöndunarvegi eykst vegnabreytinga í sjálfvirka taugakerfinu. 3. Starfsemi slímkirtla og bifhára breytist. 4. Sléttir vöðvar í öndunarvegi dragast auðveldar saman við áreiti (hyperresponsi veness). Þessar breytingar hrinda af stað vítahring þar sem eosínófílar, mastfrumur, átfrumur og þekjufrumur eru í hlutverki bólgufrumna. Einnig framleiða frumurnar sjálfar ákveðin prótein eins og frumu- boðefni (cytókín) sem viðhalda bólguferlinu. Bólgumyndunin leiðir til flögnunar á þekjulagi berkjunnar. Afleiðingin er aukið gegndræpi ýmsra ofnæmisvaka og ertiefna. Taugaendar sem áður voru þaktir yfirborðsþekju eru nú berskjaldaðir og auðreitanlegir. Því meira sem bólgusvarið og þekjurofið er, því minni ertingu þarf til að valda samdrætti í öndunarvegi. Unnt er að mæla fyrrgreinda "auðreitni" í öndunarvegi með svokölluðu metakólín- eða 52 LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.