Læknaneminn - 01.10.1994, Side 73

Læknaneminn - 01.10.1994, Side 73
húðarinnar verið reynd í Bandaríkjunum. I Bretlandi hafa Anglo-European College of Chiropractic og Oxford University haft samvinnu um þróun röntgen kvikmyndatækni en ekki náð viðhlýtandi árangri ennþá. „MANIPULATION“ Ég hef kosið að nota orðið „manipulation“ hér fremur en „hnykking". Orðið hnykking gefur til kynna miklar sviftingar og jafnvel aflbeitingu. Það skýrir því illa það sem því var ætlað að skýra og vekur ótta hjá mörgum um að meðferðin sé hættuleg. Ég tel að orðið „liðlosun“ hefði verið heppileg þýðing á „ manipulation “ en orðið liðkun eðlileg þýðing orðsins „mobilisation“ („mobilisation" hefur verið kölluð „liðlosun“ á íslensku). Þegar manipulation er beitt er bilið milli liðflata opnað. Liðurinn er færður að mörkum aðfenginnar hreyfingar (limit of passive range of motion), teygjumörkum (elastic barrier of resistance), þar sem NEUTRAL Active Range Passive Range Paraphysiological Space JOINT RANGES OF MOTION Mynd4: Við “manipulation” er liðurinnfœrður að mörkum “passive range of motion”. Þar er þrýst á með viðbragði og liðurinn þannig fœrður inn í “paraphysiological space". mjúkvefir fara að sogast inn á milli liðflatanna vegna undirþrýstingsins sem þar myndast. Þar er þrýst á liðinn með örsnöggu viðbragði en mjög lítilli færslu til þess að opna hann enn frekar inn lífeðlisfræðilega „ hjáhreyfmgu “ (paraphysiological range of motion). Við þetta myndast loftbóla (yfir 80% koldíoxíð) úr liðvökvanum sem springur jafn harðan með heyranlegum smelli. Liðurinn er ávallt innan líffærafræðilegra hreyfimarka en meðferðin krefst aðgátar og mikillar þjálfunar svo sem nærri má geta (myndir 4,5,6,7,8). Meðferðarleg áhrif þessa eru ekki að fullu þekkt. Mierau og samstarfsmenn hans sýndu fram á aukið bil milli liðflata og aukna beygingu (flexion) hnúaliðar (metacarpo-phalangeal joint) löngutangar, eftir tog á liðinn sem nægði til þess að framkalla í honum brakhljóð8. Svipaðar niðurstöður hafa fengist í rannsókn á hálsiT Talið er að ef „mánungi" (meniscoid) í stýriliðum (uncovertebral joint) brettist upp og klemmist milli liðflatanna og geti hann valdið liðskekkingu (sub- luxation). I slíkum tilfellum virðist unntað opna bilið milli liðflatanna með manipulation og losa þannig um mánungann og leiðréttahreyfingu- og stöðu liðarins10. Hugsanlegt er að með manipulation sé hægt að hafa áhrif á uppbyggingu veíja umhverfis lið sem hefur orðið fyrir skemmdum, s.s. tognum. I liðbandi sem grær við hæfilega hreyfingu á sér stað betri niðurröðun kollagenþráða og grunnefni (matrix) þess verður betur skipulagt. Þegar skaddaður fósturbandvefur (mesen- chymal tissue) grær, á sér stað aukning á kollageni af gerð I en töluvert meiri af gerð III. Kollagen af gerð III verður mun meira en af gerð I, sem er öfugt miðað við eðlilegt ástand í liðböndum. Þannig liðband þolir mun minna álag en óskaddað. Aðrar vefjabreytingar eru minnkun glycose- aminoglycan og þar með minnkað vatnsinnihald og aukin krosstenging mólikúlanna í sködduðu liðbandi. Aukin samloðun (adhesions) forkollagens leiðir til samdráttar í vefjum um hreyfiskerta liði, t.d. vegna þess að liður er spelkaður eða vegna „milliliða vöðvaspennu “ í hrygg (intersegmental hypertonisity). Hugsanlegt er að hreyfiskerðing eins og lýst er hér að ofan sé megin ástæða fyrrnefnds hreyfimeins (fixa- tion). Slfk stífni getur leitt til vöðvarýrnunar og lengingar samdráttar- og slökunartíma vöðva". Standist þessar kenningar er ljóst að mikilvægt er að meðferð geti hafist sem fyrst. Einnig gefur þetta LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg. 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.