Læknaneminn - 01.10.1994, Síða 89
*
• •
FAGURT ER I FJORÐUM
Jórunn Viðar Valgarðsdóttir
Unga kynslóðin í dag er oft kennd við auglýsingar,
því við erum alin upp við þvílíka síbylju auglýsinga
og slagorða að það hálfa væri nóg. Afrakstur þessa er
augljós: við göngum í Levi's buxum, drekkum Tab
Extra og Pepsi Max (enda þótt við vitum að mjólk er
góð), borðum pizzu í hvert mál og fylgjumst með
rómantík Nescafé-nágrannanna af áhuga. Það þarf
þ ví engan að undra að eftir nokkurra mánaða heilaþ vott
meðslagorðinu “ ísland- sækjumþað heim “reyndist
það létt verk að smala saman hópi fólks í sex daga
gönguferð um okkar fagra land.
Ferðinni var heitið norður í land, nánar tiltekið á
skagannmilli Eyjafjarðarog Skjálfanda. Þessiskagi
er mér, greinarhöfundi, mjög hjartfólginn. Föðurætt
mín er þaðan og þar dvaldi ég mörg sumur í sveit.
Nyrsti hluti hans er kominn í eyði, og það fyrir
nokkrum áratugum síðan - og er þetta stórkostlegt
útivistarsvæði.
Áður en ferðasagan hefst ættu lesendur að líta á
meðfylgjandi kort og átta sig á hvernig landið liggur:
Þarna eru þrír samsíða fjallgarðar sem liggja frá
norðri til suðurs, með tveimur jeppafærum dölum á
milli. Sá vestari opnast niður í Fjörðurnar (kvk. ft.),
en hinn verður að Flateyjardal við sjóinn, og er Flatey
þar skammt undan landi. Upphaf göngunnar var á
vesturströnd skagans, við útgerðarbæinn Grenivík,
og endir hennar í Köldukinn, austanmegin.
Skipuleggjendur göngunnar voru, auk greinar-
höfundar: Arnar þór Guðmundsson (eiginmaður gr.
höf.), Valgarður Egilsson (faðir gr.höf.), Hrólfur
Brynjarsson (frændi gr.höf.), EinarÖrn Einarsson og
ÓlafurIngimarsson(tengjastgr.höf. vináttuböndum).
Markhópurinn var í upphafi skilgreindur sem allir
læknanemar ásamt vinum þeirra og ættingjum -
semsagt allir velkomnir. Dagsetning göngunnar var
ákveðin með margra mánaða fyrirvara svo fólk gæti
Höfundur er lœknanemi við LœknadeildHáskóla
Islands.
samið við vinnuveitendur sína um leyfi. Auglýsingu
um ferðatilhögun var dreift til samstúdenta, og brátt
urðu símalínur rauðglóandi. Efnt var til “slides -
myndakvölds" svo fólk keypti nú örugglega ekki
köttinn í sekknum. Enn fremur var farin æfingaferð
yfir Fimmvörðuháls til Þórsmerkur skömmu fyrir
gönguna miklu og reyndist líkamlegt þrek manna vel
viðunandi, þótt hælsæri væru sumum til trafala.
Föstudaginn 22. júlí lagði hinn fríði hópur af stað
á vit ævintýranna. Veðrið var of gott til að vera satt
- háskólafólk á jú að efast um allt - en þetta góða veður
var sérlega sannfærandi og elti okkur á röndum næstu
vikuna. Þegarnorðurvarkomiðfékkhópurinn gistingu
í sumarbústað á vegum Hrólfs, í Skarðsskógi í
Dalsmynni.
FYRSTI GÖNGUDAGUR
Grenivík - Látraströnd - Látur
Brottförinni seinkaði umnokkurakademískkortér
en að þeim loknum Iagði hinn 27 manna hópur af stað
norður Látraströnd. Meðal fólksins ríkti almenn
kátína, en ekkert jafnaðist þó á við ferðagleði hundanna
tveggja sem í hópnum voru - að þeirra áliti var ferðin
farin eingöngu til að skemmta þeim og hófu þeir
þegarótímabærasmölunáöllusemkvikt var. Ströndin
sjálf er ákaflega gróðursæl og verður gróðurinn meiri
eftir því sem norðar dregur, þótt ótrúlegt megi virðast.
Undirlendið er mismikið; víða ganga hamrar í sjó
fram, en á milli eru víkur með eyðibýlum. Á síðustu
öld var þarna rnikil hákarlaútgerð og mætti minnast
Hákarla-Sæmundar í því samhengi. Hann var mikið
hreystimenni, drakk hákarlalýsi beint úr tunnunni og
varð aldrei misdægurt.
Stuttu áður en komið er í Látur þarf að krækja upp
fyrir Látrakleifar, snarbratta hamra. Slóðin liggur í
fjallshlíðinni ofan þeirra og er greiðfær fótvissu fólki
að sumri til, en hefur verið stórhættuleg að vetrarlagi.
Hin þjóðkunna skáldkona Látra-Björg (1716-1784)
LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
79