Læknaneminn - 01.10.1994, Side 109

Læknaneminn - 01.10.1994, Side 109
augnristil. Helstu augnvandamálin voru conjunktivitis (57%), keratouveitis (28.6%), keratitis (7%) og iridocyclitis (7%). Af þeim 14semfengu augnristilhöfðu 10(71%)útbrotánefieðasvo nefnt Hutchinson’s sign, en af þeim sem ekki fengu útbrot á nefið (32) fengu 3/5 (9-16%) augnristil. Verkir voru til staðar hjá 13 af 36 sjúklingum (36%) við 1 mánuðfráupphafiútbrota, 1 af39(3%)við3mánuði, 1 af38(3%) við 6 mánuði og hjá 1 af 32 (3%) við 12 mánuði. Meðferðarmynstrið var þannig að 7 (17%) fengu kerfisbundna veirulyfjameðferð og af þeim einn í ráðlögðum skömmtum. Staðbundna veirulyfjameðferð fengu 16 (38%) sjúklingar, og af þeim hafa 70% verið í augun. Þeir sem fengu enga meðferð voru 8 (19%) en þeir sem fengu enga meðferð, verkjalyf, sýklalyf eða róandi lyf voru 21 (50%). Samantekt og ályktanir: Hingað til hafa upplýsingar um algengi og alvarleika augnvandamála hjá sjúklingum með ristil á augnsvæði grundvallast á afturvirkum rannsóknum eða völdum sjúklingum. Þar virðist algengi augnvandamála vera að einhverju leitiofmetið.Þessirannsóknerumfangsmestaframvirka athugunin sem gerð hefur verið og því má ætla að hún gefi marktækar upplýsingar. Okkar niðurstöður sýna að einungis 33% sjúklinga með ristil á augnsvæði fá kliniskt greinanlega sýkingu í auga (augnristil) og þar af verða 71 % þeirra einungis fyrir tímabundinni augnbólgu og 29% fyrir varanlegum augnskaða (keratouveitis, keratitis, iridocyclitis). Tíðni varanlegra augnskemmda virðist því vera 12% meðal sjúklinga með ristil á augnsvæði. ÁHRIF AFURÐA EITILFRUMNA Á VÖXT OG HEGÐUN BRJÓSTAKRABBAMEINSFRUMNA Hrólfur Brvniarsson'. Helga M. Ögmundsdóttir2, Kristrún Ólafsdóttir3. 'LHÍ, 2Rannsóknarstofa Krabbameinsfélags Islands í sameinda og frumulíffrœði, RiII í meinafræði. Inngangur: Iferð eitilfrumna í brjóstakrabbameinsæxli er algeng, en áhrif þessa á vöxt æxla hefur á hinn bóginn ekki verið skýr. Sýnt hefur verið fram á vaxtarörvandi áhrif eitilfrumna á brjóstakrabbameins-frumur í rækt, og að vaxtarörvunin var í jákvæðu sambandi við tjáningu æxlisfrumnanna á vefja- flokkasameindum af flokki I. Enn fremur benda upplýsingar til þess að krabbamein með bæði vefjaflokkasameinda-jákvæðar og -neikvæðar æxlisfrumur geti sagt til um verri horfur sjúklings. Þetta hefur leitt til þeirrar kenningar að æxlisfrumur sem eru jákvæðar m.t.t. vefjaflokkasameinda af flokki 1 gætu örvað eitilfrumur til losunar á vaxtarörvandi þáttum, sem aftur myndu örva þær æxlisfrumur sem ekki tjá vefjaflokkasameidir til vaxtar. Efni og aðferðir: I upphafi voru brjóstakrabbameins- frumulínurnar: MCF-7, ZR-75-1 og T-47-D og bandvefsfrumu- línurnar 1771 og 1863, litaðar fyrir B2M, en B2M er hluti vefjaflokkasameindar af flokki I. Þessi litun var notuð sem mælikvarði á tjáningu frumnanna á vefjaflokkasameindunum. Þvínæst voru eitilfrumur einangraðar úr blóðgjafarblóði og þær settar í samrækt með brjóstakrabbameinsfrumum og band- vefsfrumum, þar sem eitilfrumurnar voru hafðar tífalt fleiri. Sem jákvæð viðmiðun voru eitilfrumur ræktaðar með þekktu vaxtarörvandi efni (PH A), en eitilfrumur í eintómu æti hafðar sem neikvæð viðmiðun. Þvínæst voru eitilfrumurnar einangraðar úr samrækktinni og ræktaðar einar sér í sólarhring. Jafnframt var á þessu stigi tekinn “afleggjari” af öllum eitilfrumunum og thymidinupptaka þeirra mæld, sem mælikvarði á örvun þeirra. Að lokum var flotið af þeim hirt og vaxtarörvandi áhrif flotsins athuguð á nokkrum brjóstakrabbameinsklínum: MCF-7, ZR-75- 1 og MDA-MB-231. Fylgst var með vexti frumnanna í nokkra daga og mælikvarði á vöxt fenginn með því að telja fjölda þeirra á nokkrum flatarmálseiningum undir smásjá og meðaltal þeirra talninga fundið. Að auki voru myndir teknar. Niðurstöður: Litun fyrir B2M sýndi mismikla tjáningu meðal frumutegundanna. Mesta tjáningu sýndu bandvefsfrumurnar. Brjóstakrabbameinslínan ZR-75-1 sýndi litla sem enga tjáningu, en MCF-7 og T-47-D sýndu nokkra tjáningu. Niðurstöður fyrstu tilraunar gáfu vísbendingu um vaxtarörvun krabbameins- frumulínunnar MDA-MB-231 fyrir tilstuðlan flots af eitilfrumum örvuðum af línunni T-47-D, sem og vaxtarörvun krabbameins- línunnar MCF-7 fyrir tilstuðlan flots af eitilfrumum örvuðum af MDA-MB-231 og T-47-D. Seinni tilraun sýndi fram á vaxtarörvun MDA-MB-231 við að fáflot af óörvuðum eitilfrumum, sem og af floti af eitilfrumum örvuðum af PHA, bandvefsfrumum og krabbameinsfrumulínunum MCF-7, MDA-MB-231 og ZR-75-1 (minnst örvun af völdum þeirrar srðastnefndu). Ályktanir: 1) Niðurstöðurnar benda ekki til jákvæðs sambands milli vefjaflokkatjáningar þeirra frumna sem örva eitilfrumurnar, og örvunar þeirrasíðarnefndu. Þarnahefureflaust sú staðreynd haft áhrif að frumurnar sem settar voru í samrækt voru úr ýmsum einstaklingum og því tilviljunum háð hve mikill munur hefur verið á vefjaflokkasameindum frumnanna. 2) Niðurstöðurnar styðja þá tilgátu að eitilfrumur seyti vaxtarörvandi þáttum eftir samrækt með öðrum frumum. 3) Samband tjáningar vefjaflokkasameinda af flokki I á frumunum sem voru í samrækt með eitilfrumunum, og seytrun vaxtarörvandi þátta þeirra síðarnefndu er ekki ljóst af þessum niðurstöðum, en sjá má vísbendingu í þá átt að um jákvætt samband kunni að vera þar á milli. 4) Sökum ónógra niðurstaðna var ekki unnt að meta tjáningu vefjaflokkasameinda þeirra frumna sem flot eitilfrumnanna var prófað á, m.t.t. vaxtarörvunar. EITRUNARSLYS BARNA í REYKJAVÍK. Ineibiöre Biarnadóttir'. Brynjólfur Mogensen2, Atli Dagbjartsson2, Arni Þórsson4. 'LHÍ, 2Slysadeild Bsp, 3Barnadeild Lsp, ABarnadeild Lkt. Inngangur: Barnaslys eru algeng á Islandi, mun algengari en í nágrannalöndunum. Eitrunarslys barna 0-14 ára voru algeng, en þeim virðist hafa farið fækkandi undanfarin ár. Talið er að fækkunin sé að einhverju leyti að þakka betra forvarnarstarfi, þ.e. fræðslu um skaðsemi lyfja og ýmissa annarra efna sem geymd eru á heimilum, betri geymslu þessara efna og barnheldari umbúðum. Tilgangur þessarar athugunar var að kanna hvort og þá hve mikið eitrunarslysum barna 0-14 ára hefði fækkað árið 1993 miðað við árið 1984; og jafnframt að skoða mynstur eitrananna árið 1993. Efniviður og aðferðir: Gerð var tölvuleit að þeim 0-14 ára börnum með lögheimili í Reykjavík., sem komu inn vegna eitrunar LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg. 99
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.