Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1996, Síða 64

Læknaneminn - 01.04.1996, Síða 64
Kristján Orri Helgason Fyrir um 20 árum hefðu fáir trúað því að einföld lofttegund væri eitt af aðalboðefnum líkamans. Nú hefur komið í ljós að lofttegundin NO (nitur oxíð), sem áður fyrr var talið að ætti einungis þátt í loft- mengun, gegnir mikilvægu hlutverki víðsvegar um líkamann. Einnig hefur komið í ljós að of- eða van- myndun þess á þátt í meingerð margs konar sjúk- dóma. I þessari örgrein verður lítilega rætt um sam- eindina og tekin nokkur dæmi um sjúkdóma þar sem NO á hlut að máli. NO hefur marga sérstæða eiginleika sem hin hefðbundnari boðefni líkamans hafa ekki. Vegna eiginleika sinna sem lofttegundar dreifist NO í jöfnum radíus út frá myndunarstað óháð fyrirstöðu á borð við frumuhimnur. Þetta kemur í veg fyrir að hægt sé að stjórna verkun þess með fyrirfram myndun, geymslu, seytrun og endurupptöku eins og gerist oft hjá öðrum boðefnum. NO myndast í líkamanum þegar ensímið NOS (nitur oxíð synt- asi) klýfur amínósýruna L-arginín niður í cítrúllín. NO binst hemhóp á gúanýl sýklasa og örvar þann- ig ensímið til myndunar á cGMP. Þetta eru talin vera helstu líffræðilegu áhrif NO. Þó hefur NO áhrif eftir öðrum leiðum. Það er hvarfgjarnt, óstöðugt og hefur stuttan líftíma. Með því að bind- ast súperoxíð anjónum, hem og Fe-S hópum próteina getur það haft frumuskaðandi áhrif. Þannig er það hluti af vopnabúri frumna ónæmis- kerfisins til að eyða sýklum og krabbameinsfrum- um. NO er sindurefni og getur því valdið kjarn- sýruskemmdum. Engu að síður hefur NO einnig áhrif á umritun erfðaefnis eftir hefðbundnum leið- um. I byrjun síðasta áratugar var í fyrsta skipti lýst líf- fræðilegri verkun NO, þá sem æðavíkkandi efnis. Kristján er lœknanemi við Háskóla Islands. Undrasameindin NO Sýnt var fram á að EDRF (endothelium derived relaxing factor) og NO væru sama efnið. Efni eins og katekólamín, acetýlkólín og bradýkínín losa EDRF / NO úr æðaþelsfrumum sem veldur slökun í sléttvöðvafrumum æða með því að auka þar styrk cGMP. Það er t.d. í gegnum NO sem nítróglýserín hefur áhrif sín á hjartakveisu. NO er einnig talið hemja samloðun og viðloðun blóðflaga og verka þannig sem innrænn storkuvari. Auk þess hefur NO áhrif á samdráttarhæfni hjartavöðva. NO gegnir mörgum ólíkum hlutverkum í ónæmiskerfmu. Það tekur þátt í stjórnun bólgu- svars með því að auka blóðflæði og bjúgmyndun. NO hefur letjandi áhrif á sumar eitilfrumur og tek- ur líklega þátt í stjórnun annarra frumuhópa ónæmiskerfisins. NO er þar að auki eitt helsta frumu- og sýkladrepandi sindurefni ónæmiskerfis- ins. I sumum tilvikum hefur NO frumuverjandi áhrif, eins og þegar blóðflæði kemst á aftur eftir blóðþurrð. NO gegnir hugsanlega mikilvægu hlutverki í þróun sjúkdóma í hjarta- og æðakerfinu. Helstu áhættuþættir æðakölkunar (reykingar, háþrýsting- ur, hækkaðar blóðfitur, sykursýki) eiga það sameig- inlegt að valda æðaþelsskemmdum sem trufla myndun virkra efna í æðaþelinu, svo sem NO og prostaglandína. Þessi truflun er talin vera grund- vallaratriði í sjúkdómum eins og æðakölkun og segamyndun. NO er einnig talið valda illvígum lágþrýstingi í septísku losti af völdum endótoxína og í þróun er meðferð sem byggir á hömlun NOS. Auk þess sem NO á hlut f að viðhalda grunn- spennu sléttvöðvafrumna æðakerfisins tekur það einnig þátt í stjórnun blóðþrýstings með því að stýra blóðflæði um gauklakerfi nýrna en þar fer fram mikilvægur þáttur í blóðþrýstingsstillingu. Talið er að vanmyndun NO í makúla densa og nýrnaæðaþeli orsaki saltháðan háþrýsting. LÆKNANEMINN 56 1. tbl. 1996, 49. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.