Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Page 6

Læknaneminn - 01.04.1999, Page 6
Vituð þér enn eða hvað? Um nám læknanema og unglækna Sigurður Guðmundsson Nám í læknadeild og skipulag kandídatsárs hefur verið mjög til umræðu að undanförnu. Reyndar hefur skipulag náms í læknadeild verið nokkrum breyting- um háð á undanförnum áratugum en þó hafa ekki orð- ið róttækar breytingar á skipulagi námsins í tæp 30 ár, með nokkrum heiðarlegum undantekningum þó. All- mikii skoðanaskipti og umræður hafa orðið innan læknadeildar um áherslubreytingar og hefur þar ým- islegt verið borið upp, fjöldi nema í deildinni, val inn í deildina, hlutfallsleg áhersla á grunnfög eða klínísk fög, samtenging grunnfaga og klínískra faga, valfrelsi innan læknadeildar, prófatilhögun, ábyrgð lækna- nema og fleira. Hér verður reynt í stuttu máli að gera grein fyrir nokkium persónulegum sjónarmiðum og vangaveltum frá sjónarmiði áhugamanns um lækna- nám. VAL STÚDENTA TIL LÆKNANÁMS Numerus clausus hefur verið við lýði við lækna- deild í rúma tvo áratugi. Um tilkomu þessa fyrir- komulags stóðu miklar deilur á sínum tíma og hafa skoðanir sumra sem í þeim tóku lítið breyst, þó frem- ur hljótt hafi verið um málið undanfarinn áratug. I grundvallaratriðum er numerus clausus fremur órétt- lát aðferð við að takmarka aðgang í skóla, menn græða á slökum félögum sínum en tapa á hinum góðu. Nýlega hefur fjöldi í numerus clausus verið aukinn í 40 manns, en að undanförnu hafa útskriftar- árgangar verið á bilinu 30-40. Vitað er að í lækna- skort stefnir á Islandi eftir 10-15 ár og nú þegar er far- ið að kreppa að verulega í ýmsum greinum, einkum heilsugæslulækningum, sumum greinum skurðlækn- inga o.fl. Allt bendir því til að íslenskt þjóðfélag þurfi á fleiri læknum að halda á næstunni og kallar það að sjálfsögðu á stærri útskriftarárgang. Eigi að síður Höfundur er landlœknir verður að hafa í huga að af um 1400 íslenskum lækn- um núlifandi eru um 500 erlendis og óvíst hve mikill hluti þeirra kemur til starfa. Auk þess fara nær allir ís- lenskir læknar til framhaldsnáms erlendis og starfa ekki hér um tveggja til tíu ára skeið að loknu kandídatsnámi. Vikið verður að þessu síðar. Numerus clausus aðferð þeirri sem við höfum beitt hérlendis hefur auk ofanskráðs verið meðal annars gagnrýnd fyrir hversu stutt nám liggur til grundvallar vals inn í deildina og hversu lítt tengt það er við klíníska læknisfræði, fagið sem stúdentar ætla að leg- gja stund á. Ástæða er til að breyta þessu. Að sjálf- sögðu er nauðsynlegt að takmarka aðgang í lækna- deild eins og aðrar deildir Háskólans. Eðlilegt er að gera það á grundvelli faglegra marklýsinga og krafna sem byggði á fastri lágmarkseinkunn (jafnvel þó hún væri há). Einhverjar sveiflur yrðu á árgangastærð en ólíklegt að þær verði verulegar. Valið þyrfti að byggj- ast á víðtækara námi en nú er og væri þess vegna betra að koma því fyrir í lok fyrsta árs en eftir eitt misseri eins og við gerum nú. Einnig kemur til álita að líta til fleiri þátta. Menn hafa rætt einhvers konar persónuleikapróf en ljóst er að seint yrði sátt um slík- ar aðferðir. Fremur kæmi til greina einhvers konar inntökupróf sem byggt yrði á almennri þekkingu úr framhaldsskólum og á umhverfi viðkomandi í sem víðtækastri merkingu. Aðrar þjóðir hafa beitt þessu, má þar nefna svonefnd „situational assessment test” í Bandaríkjunum. Þetta þarf íhugunar og umræðu við. FYRSTU ÁRIN Á fyrstu árum læknanáms eru kennd ýmis grunn- fög, þ.á.m. almenn efnafræði, lífræn efnafræði, frumulíffræði og eðlisfræði. Þessi fög eru mikilvægir hornsteinar náms í læknisfræði og nauðsynleg til skilnings á ýmsu sem síðar kemur. Hins vegar hefur 6 L/EKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.