Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Side 7

Læknaneminn - 01.04.1999, Side 7
oft verið rætt innan deildarinnar um að hluti þess sem þar er kennt á fyrstu tveimur árum ætti ekki síður heima í framhaldsskólum og Háskólinn gæti gert þá kröfu að tiltekin efni væru þegar á valdi stúdenta við innritun í deildina. Eg er sammála þessu sjónarmiði. Mjög nauðsynlegt er að gefa aukið rými fyrir klínís- ka nálgun sem fyrst í náminu, þ.e. strax á fyrsta ári og er það ein af meginbreytingum sem námsskrá lækna- deildar þarfnast. Auk þess höfum við oft reynt að tengja betur saman grunnfög og klínísk fög í deild- inni en því miður hefur okkur ekki tekist sem skyldi og hlotið réttmæta gagnrýni fyrir. Þarna er á ferðinni alþjóðlegt vandamál sem mjög margir læknaskólar hafa glímt við með misjöfnum árangri. Þetta vanda- mál þarfnast þvf endurskoðunar. VALFRELSI í NÁMINU Enginn vafi er á því að eitt hið besta sem við höf- um gert fyrir læknanám á Islandi undanfarin ár er rannsóknarverkefni 4. árs. Það hefur tekist mjög vel og mörg verkefna birst í innlendum og erlendum læknatímaritum. Fjölbreytnin hefur verið mikil, verk- efnin hafa verið hvati kennara læknadeildar til rann- sókna og langflest verkefnanna hafa ekki verið svo- nefnd „stúdentaverkefni” heldur verkefni sem ljóst er að kennarar hefðu fyrr eða síðar gert sjálfir hefðu þeir haft tækifæri til. Aður hafði verið boðið upp á lengra rannsóknarnám, BS og síðar MS, sem margir hafa nýtt sér og flest þau verkefni orðið að rannsóknum með alþjóðlegri skírskotun. Doktorsnámi vex líka fiskur um hrygg. Að öðru leyti er nám í Iæknadeild kjarnanám og býður ekki upp á neitt valfrelsi. Þetta hefur verið til umræðu lengi í deildinni og verið bent á kosti þess að íslenskir læknar væru ekki allir steypt- ir í sama mótið. Ljóst er að aðrar deildir Háskólans bjóða upp á ýmis námskeið og kúrsusa sem gagnast gætu læknum mjög vel. Má þar nefna stjórnun, viða- meira tölfræðinám, nám í tölvunarfræði, siðfræði, heimspeki og svo mætti lengi telja. það væri meira að segja læknum ekki til vansa að auka fjölbreytni læknanámsins með kúrsusum í bókmenntum, sögu eða tónlist svo eitthvað sé nefnt. Vandinn við þetta hefur verið sá að ekki hefur náðst samkomulag um hverju ætti að skipta út. Við endurskoðun námskrár læknadeildar fyrir um það bil 10 árum var mikið reynt að stytta nám í ýmsum fögum, t.d. með fækkun fyrirlestra, m.a. til að afla rýmis til valfrelsis. Fyrir- lestrafækkun náði einna helst fram að ganga í lyf- lækningum og skurðlækningum en gekk síður í öðr- um greinum. Þessi sjónarmið voru endurvakin fyrir fáeinum misserum og er enginn vafi á því að þetta at- riði er meðal heillandi og áhugaverðra verkefna sem bíða endurskipulagningar. PRÓFIN Próffyrirkomulag læknadeildar er á þann veg að venjulega eru tekin skrifleg próf eftir hvert námskeið eða að lokinni umfjöllun hvers fags. Munnleg próf eru nær engin nema í lok 6. árs. Engin heildræn eða samtvinnuð próf eru haldin og ég held að því megi halda fram að próffyrirkomulag okkar miðist fremur að prófaminni og námsskerpu fremur en skilningi til úrlausnar vandamála. A þessu eru vissulega undan- tekningar og má þar nefna klínísk próf á 6. ári. All- nokkur umræða hefur verið um að koma á heildræn- um prófum sem prófuðu víða úr námsefni á sama tíma. Tillögur hafa komið fram, óformlegar að vísu, um slík próf í lok 2., 4. og 6. árs. Slík próf eru að sjálfsögðu mjög viðamikil og kosta mikinn tíma og vinnu þannig að þau séu vel úr garði gerð. Einnig er nauðsynlegt að staðla slík próf og hafa mælikvarða á gildi þeirra. Því höfum við velt fyrir okkur að áhuga- vert væri að Ieita til erlendra pról'gerðastofnana um aðgang og kaup á slíkum stórum prófum. Ljóst er að læknisfræði er alþjóðlegt fag og mun skynsamlegra er að keppa að þessu leyti við erlenda háskóla fremur en innbyrðis eða í reynd ekki við neitt eins og hér gildir innanlands. Þess ber að geta að hluti hvers út- skriftarárgangs tekur eitt slíkt alþjóðlegt próf sem lagt er fyrir deildarlækna á lyflækningadeildum á 1. og 2. ári eftir útskrift (In-Training Examination) og hefur það yfirleitt gengið vel. MEÐALALDUR LÆKNANEMA Ýmsir hafa bent á að íslenskir læknar séu eldri en læknar nágrannalanda við útskrift úr læknaskóla. Læknanám hér á landi er þó síst lengra en í flestum nágrannalöndum (að undanskildum Bandaríkjunum). Flestir unglæknar í nálægum löndum eru á aldrinum 25-28 ára og skera íslenskir læknar sig ekki þar veru- lega lir. Þó svo að það verði seint hlutverk mitt að kveða upp úr um kosti og galla hins íslenska skóla- kerfis er ljóst að stúdentsaldur á Islandi er hár og mætti vafalítið Iækka hann um eitt til tvö ár að ósekju. LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg 7

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.