Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Page 8

Læknaneminn - 01.04.1999, Page 8
KANDIDATSARIÐ Kandídatsár á Islandi er 12 mánuðir og er styttra en á öðrum Norðurlöndum en þekkist í reynd ekki í þessari mynd í Bandaríkjunum. Aður ríkti hér svo- nefnd „héraðsskylda" og var þar unglæknum gert að skyldu að starfa um tíma úti á landi auk áðurnefndra 12 mánaða. Eftir að héraðsskyldan var felld niður var ekki gert ráð fyrir starfi unglækna við heilsugæslu en því síðan breytt og heilsugæsla heimiluð sem val- grein innan kandídatsárs. Síðastliðið vor var hins vegar starf að heilsugæslu í þéttbýli eða dreifbýli í þrjá mánuði gert að hluta kandídatsárs en fyrir voru þar skyldugreinar, fjórir mánuðir á lyflækningadeild og tveir mánuðir á handlækningadeild. Þessi ákvörð- un hefur sætt gagnrýni. Þó ber að hafa í huga að um það bil 65% af samskiptum sjúklinga hér á landi utan sjúkrahúsa er við heilsugæslu. Faglega er því unnt að renna mjög sterkum stoðum undir nauðsyn þess að ís- lenskir læknar með lækningaleyfi hafi starfað hluta af þjálfunartíma sínum við heilsugæslu á sömu forsend- um og við teljum nauðsynlegt að þeir hafi starfað við lyflækningar og handlækningar. Ljóst er að lengi má deila um hvort ekki sé nauðsyn á að þeir hafi líka kynnst barnalækningum, geðlækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum o.s.frv. I sjálfu sér væri slíkt mik- ill kostur en jafnljóst að einhvers staðar verður að draga mörk. Þetta er til nokkurs samræmis við kröfur sem farnar eru að verða háværari í nálægum löndum um aukna þjálfun námslækna í greiningu og meðferð sjúklinga utan stofnana. Þessi breyting er þó ekki hugsuð sem og má aldrei verða tæki til lausnar skammtímavanda í mönnun í heilsugæslu á íslandi. Breytingin leggur auknar skyldur á heilsugæsluna í landinu að sinna náms- læknum vel, nota tækifærið til að glæða áhuga þeirra á faginu og treysta fagið þannig í sessi. Að sjálfsögðu þurfa að koma þar til efnisleg atriði sem lúta að ráðn- ingu, aðstöðu og kjörum námslækna en ekki síður áhugi og virkni heilsugæslulækna sjálfra. Víst er að meðal þeirra er mikill áhugi á þessu máli. Þær breyt- ingar sem á döfinni eru í skipulagi heilsugæslu, eink- um á landsbyggðinni, sameining heilsugæslusvæða, stofnun stærri heilbrigðisstofnana, veitir einnig rými til meiri fjölbreytni í starfi og meiri og betri kennslu. VINNUTILSKIPUN EVRÓPUSAMBANDSINS Vinnutilskipun Evrópusambandsins vofir yfir ís- lenskri læknastétt eins og öðrum. Enn er tekist á um hvort hún skuli gilda fyrir námslækna en næsta víst er að svo muni verða í náinni framtíð. Mjög nauðsynlegt er að Islendingar mæti þessum breytingum og að við gerum okkur grein fyrir áhrifum þeirra í tíma. I kjöl- far síðustu kjarasamninga hefur nefnd starfað að mál- inu. Læknisfræði verður að sjálfsögðu aldrei fag sem unnt er að stunda frá átta til ljögur og alltaf mun stór hluti lækna þurfa að sinna sjúklingum á ýmsum stundum sólarhringsins. Eigi að síður er nauðsynlegt að hverfa frá hinum löngu vöktum úttaugaðra, ör- magna unglækna sem við svo mörg höfum kynnst. þetta er einfaldlega kall tímans sem betur fer og kannski þurfti aukinn fjölda kvenna í læknastétt til að þessi sjónarmið fengju framgang. Ymsar leiðir hafa verið farnar til þess að stytta vaktir og gera þær bæri- legri, flestar þeirra hafa verið til umræðu hér, einkum „sérstakar næturvaktir” (night float). Þessar hug- myndir hafa mætt nokkurri andstöðu, þ.á.m. frá unglæknum sjálfum sem töldu tekjuskerðingu hljót- ast af. Varla verður hjá því komist að tekjur minnki ef vinnutími utan venjulegs dagvinnutíma styttist. Þrátt fyrir breytingar á vaktafyrirkomulagi er jafnljóst að fylla þarf tiltekinn vinnustundafjölda með mannskap og er þetta hin meginástæðan fyrir því að við þurfum að huga að stækkun útskriftarárgangs læknadeildar. AÐ HEIMAN OG HEIMA Ekki verður fjallað sérstaklega um framhaldsnám íslenskra lækna hér, enda efni í annan pistil. Hins vegar er rétt að minna á að flestir íslenskir læknar verja hluta starfsævi sinnar við framhaldsnám erlend- is. Er það vel og værum við að stíga skref aftur á við ef við stefndum að fullu framhaldsnámi í flestum greinum læknisfræði hér heima. Eitt aðalsmerki ís- lenskra lækna hefur verið fagleg breidd þeirra og víð- sýni með alþjóðlegri skírskotun. Hins vegar er jafn- ljóst að unnt er að stytta þann tíma sem menn þurfa að dvelja erlendis með eflingu fyrstu stiga framhalds- náms hér á landi og ber að efla þá vinnu sem hafin er í því efni. Starfsumhverfi íslenskra lækna hefur enda batnað á undanförnum áratugum. Fjölgun þeirra eykur fjöl- breytni og hefur íjölgað áherslum, lleiri eru í hverri sérgrein og því hefur þeim flestum vaxið fiskur um hrygg. Laun, a.m.k. sjúkrahússlækna, hafa batnað verulega að undanförnu. Mikil gróska er í framþróun og þjónustu við sjúklinga utan spítala og umræður um starfsemi stóru spítalanna í Reykjavík bjóða upp á breytt umhverfi, hver sem endanleg niðurstaða verður. Miklu máli skiptir að við reynum að hlúa að 8 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.