Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 14

Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 14
anska kerfinu eru flokkaðir eftir staðsetningu í 4 ilok- ka (N) -4). Eitlasvæði 1 (N1) eru eitlarnir sem eru við magavegginn. Þeir eru flokkaðir eftir staðsetningu: -stöð 1 (hægri cardia) -stöð 2 (vinstri cardia) -stöð 3 (minor hlið) -stöð 4 (major hlið) -stöð 5 (suprapyloric) -stöð 6 (infrapyioric) Eitlasvæði 2 (N2) eru eitlarnir sem fylgja æðum magans og flokkast eftir staðsetningu þannig: -stöð 7 (a. gastrica sin) -stöð 8 (a. hep. comra.) -stöð 9 (a. coeliaca) -stöð 10 (miltis hilus) -stöð 11 (a. lienalis) Eitlasvæði 3 (N3) eru eitlar á eftirfarandi stöðum: -stöð 12 (hepatoduodenal ligament) -stöð 13 (retroduodenal caput pancreatis) -stöð 14 (superior mesenteric) Eitlasvæði 4 (N4) eru eitlar á stöð 15 (a. colica media) og stöð 16 (paraaortic). Japanir hafa síðan lagt á það áherslu að gera aðgerð þannig að eitlasvæði 2 sé tekið (D2 (dissection) = eitlasvæði 2 tekið með) með magaaðgerðinni, hvort sem hún er alger (total) eða minni (partiel). Þeir hafa einnig lýst aðgerðum þar sem eitlasvæði 3 og 4 eru tekin. í upphafi var gert ráð fyrir að taka yrði brisskottið og miltað til að ná eitlastöð 10 og II. Japanir slógu því föstu að besta aðgerðin við magakrabbameini væri heildar- eða hlutamagaúrnám og fjarlægja þyrfti N2 eitlasvæðið til að fullnægja kröfum um gagngera aðgerð. Þeir hófu þessa aðgerð án samanburðar við aðrar aðgerð- ir. Japanir hafa ekki lagt höfuðáherslu á að fjarlægja allan nragann við aðgerð enda með miklu hærri tíðni af æxli í fjærmaga og einnig með mun fleiri sjúklinga á lægri stigum sjúkdómsins en venjan er á Vestur- löndum. Japanskir skurðlæknar eru einnig ábyrgir fyrir því að finna eitla á þeim stöðum sem fyrir er lagt og senda þá sérlega ti! meinafræðilegrar skoðunar. Það er augljóst að Japanir hafa stigað sjúklinga sína mun nákvæmar en gert hefur verið á Vesturlöndum. „Stage migration" er vel þekkt fyrirbrigði. Þegar fleiri eitlar eru teknir þá verður stigunin miklu ná- kvæmari, þ.e.a.s. sjúklingar eru réttar stigaðir. Þetta þýðir að sjúklingar færast til í stigun, sjúklingar sem eru flokkaðir í stig I eru í raun og veru í II. Horfurn- ar í stigi I batna því verulega þegar slæmir I verða góðir II og slæmir II verða góðir III og svo framveg- is. Horfurnar batna í öllum stigum en ekki heildar- horfur hópsins (Memo aid! Þetta er kallað Will Rogers áhrifin; „when the Oakies left for California the average IQ increased in both states“). Beinn sam- anburður á árangri skurðaðgerða á Vesturlöndum og í Japan er torveldur vegna mismunar í stigun. Japansk- ir sjúklingar eru um það bil 10 árum yngri, með minna af hjarta- og æðasjúkdómum, léttari og einnig grynnra kviðarhol (minni ant-post diameter) en okk- ar sjúklingar. Japanir hafa náð lang besta árangrinum við aðgerðir. Þeir hafa náð betri árangri á öllum stig- um sjúkdómsins. Mestur munur er á stigi I og II en minnkar hlutfallslega á stigi III og er ekki umtals- verður á stigi IV. Vesturlönd Aðgerðir eru gerðar þannig að lögð er áhersla á „en bloc“ tækni. Eitlataka að hætti Japana hefur ekki ver- ið reglan og gerðar hafa verið bæði heildarmagaúr- nám og hlutaúrnám. Segja má að venjulega hafi N1 eitlasvæðið verið tekið en nokkrir hópar hafa gert D2 aðgerðir. Ymsir hópar hafa mælt með heildarmagaúr- námi sem reglu meðan aðrir hópar telja hlutaúrnám nægjanlegt. Stigunarkerfi sem notað var er einnig miklu grófara en það sem Japanir nota. Beinn saman- burður á efniviðnum er því svikull. Það má slá því föstu að aðgerðir á Vesturlöndum hafi verið óstaðlað- ar og ekki nein sérstök regla í heiðri höfð. Vegna vit- neskju um betri árangur Japana var árið 1986 ýtt úr vör framsýnni slembirannsókn á vegum Medical Research Council á Bretlandseyjum til að bera saman D1 og D2 aðgerð (D1 tekur Nl eitla, D2 tekur Nlog N2 eitla). Skömmu síðar hófu Hollendingar svipaða rannsókn. Reglur sem Japanir höfðu um þessar að- gerðir kröfðust úrnáms skotthluta brissins til að fjar- lægja mætti eitlastöð 11. Þannig gat D2 aðgerð orðið allur maginn - netjan - miltað - brisskottið - N2 eitla- stöðvar - bursa omentalis (afturveggur búrsunnar var skrældur af pancreas). Niðurstöður í bráð urðu þær að fylgikvillar voru miklu algengari við D2 aðgerðirnar. Fylgikvillarnir voru sérlega bundnir við brisúrnám- ið (pancreatectomy) og að minna leyti vegna miltis- tökunnar. Báðar rannsóknirnar (breska og hollenska, yfir 1000 sjúklingar) gáfu sömu útkomu. Niðurstöður í lengd urðu þær að ekki var nokkur munur á lifun sjúklinga og á ný var brisúrnámið til vandræða með verri horfum og einnig en að minna leyti miltistakan. Þýski magakrabbameinshópurinn (German Gastric Cancer group) hefur einnig gert athuganir á D1 eða 14 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.